Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Maður vikunnar: -Lúkas.

Maður vikunnar að þessu sinni er hundurinn Lúkas. Lúkas er búinn að gera allt vitlaust á netinu og víðar. Fjölmiðlafárið byrjaði fljótlega eftir 17. júní, en þá bárust fréttir af því að ungir menn hefðu myrt hann á hrottalegan hátt. Ungur maður var nánast tekinn af lífi á netinu vegna morðsins og margir misstu sig í múgæsingunni sem varð í kringum þetta mál. Í síðustu viku reis Lúkas upp frá dauðum og nýtur lífssins í nágrenni Akureyrar. Núna standa málin þannig að morðinginn er búinn að fá uppreist æru og er búinn að kæra þá sem höfðu sig mest frammi þegar múgæsingin stóð sem hæst.

lukas

Maður vikunnar: Lúkas.


Saga úr umferðinni.

Það hefur vonandi borgað sig fyrir hann að flýta sér svona og hann hefur komist á áfangastað á réttum tíma. Ég reyndar stórefa það. Annað sem kemur mér á óvart er aldur bílstjórans, en hann segir okkur að aldur og þroski fer ekki alltaf saman.

Fyrir rúmu ári þá þurfti ég að fara með Huginn á spítala eftir að hann veiktist heima. Þetta var um miðja nótt sem við lögðum af stað frá Keflavík áleiðis á Barnaspítalann. Ég keyrði á um 100 kílómetra hraða alla Reykjanesbrautina. Eftir að við komum á Barnaspítalann og næstu daga þá var ég oft spurður hvort ég hefði ekki keyrt hratt þessa nótt. Það urðu flestir hissa þegar ég sagði þeim að ég hefði ekki gert það og ástæðan fyrir því að ég keyrði á nánast löglegum hraða er sú að ég hafi verið að flýta mér. Ég taldi mikilvægara að komast örugglega á leiðarenda, heldur að reyna að spara mér kannski 10 mínútur, en eiga hættu á að vera stöðvaður af lögreglu og jafnvel að lenda í umferðaróhappi sem myndi tefja mig mikið.

Boðskapur sögunnar er: ef þið eruð að flýta ykkur, keyrið á löglegum hraða.


mbl.is Tekinn á tæplega 200 km hraða á Reykjanesbrautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki frétt.

Mér finnst eiginlega vera "ekki frétt". Það ætti ekki að skrifa fréttir um allt sem þessir "aðgerðarsinnar" gera. Það er samt eitt fyndið við þessa frétt, borðinn sem þeir hengdu á Ráðhúsið er borðinn sem þeir ætluðu að hengja á þak Orkuveituhússins. En þeir komust ekki hærra en upp á aðra hæð hússins. Samt kom frétt um það að þessir "ofurhugar" hefðu farið upp á þak Orkuveituhússins.

Mér finnst svo margt pínlegt í sambandi við aðgerðirnar hjá þessum samtökum að það hálfa væri nóg. Til dæmis það að þeir skyldu hengja þennan borða með áletruninni "Vopnaveita Reykjavíkur" á Ráðhúsið, það hefði passað vel við Orkuveitu Reykjavíkur, en af hverju gerðu þeir ekki nýjan borða með slagorði sem hefði passað betur við á Ráðhúsið.


mbl.is Aðgerðasinnar hengdu borða á Ráðhús Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær sigur.

Frábær sigur hjá mínum mönnum eftir að hafa lent 0-2 undir. Sýndu mikinn karakter í kvöld. Ánægjulegt líka að bæði Kenneth Gustavsson og Jónas Guðni skulu hafa spilað í kvöld eftir að hafa verið alltof lengi frá vegna meiðsla.


mbl.is Keflavík lagði Midtjylland 3:2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju KR.

Til hamingju KR, þessi árangur sýnir að liðið gæti staðið sig með prýði í sænsku annarri deildinni.

Án gríns þá fagna ég þessum úrslitum. Þegar íslensk lið eru að keppa í Evrópukeppninni þá styð ég þau.


mbl.is KR og Häcken skildu jöfn í Gautaborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sú gamla alsaklaus?

Ég er ekkert of viss um að sú gamla sé alsaklaus í þessu máli. Hún hlýtur að hafa verið erfið úr því að þeir bræður skyldu fara með hana langa leið svo hún rataði ekki heim.

Eða kannski er þetta nútíma saga af Hans og Grétu, nema sú gamla hafði enga brauðmola.


mbl.is Ömmu hent á haugana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er aukning á umferðarlagabrotum?

Ég held að ástæðan fyrir mikilli fjölgun umferðarlagabrotum sé ekki af því að Íslendingar séu ólöghlýðnari en áður, heldur frekar vegna stóraukins eftirlits lögreglunnar.


mbl.is Umferðarlagabrotum fjölgar; mikil aukning á hraðakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég einn um að vera hneykslaður.

Ég ákvað að skella mér í bíó um daginn og sá nýju Die Hard myndina. Ég ákvað að fara á hana vegna þess að ég var einlægur aðdáandi fyrstu og þriðju myndarinnar. Það er ekki að marka mynd númer tvö þar sem einn lélegasti og klárlega ofmetnasti leikstjóri sögunnar, Lenny Harlin leikstýrði henni. Ég ætlaði ekki að koma með dóma um myndina hérna, heldur var það annað sem hneykslaði mig í bíóferðinni.

Eins og flestir vita þá eru Die Hard myndirnar langt frá því fallegar, ljótt orðbragð og gríðarlegt ofbeldi svo maður tali ekki um öll morðin eða slátranirnar sem eru í myndinni. Það fyrsta sem ég sá í bíó var maður sem ég kannaðist við með son sinn sem er jafngamall dóttir minni, hann er tíu ára gamall. Ég átti ekki til orð. Gat maðurinn ekki fundið betri mynd til að fara með soninn í bíó? Eða fór hann með strákinn í bíó vegna þess að hann vildi sjá þessa mynd? Það er alveg sama hvað ég hugsa um þetta ég verð bara meir og meir hneykslaður. Þessi mynd er stranglega bönnuð innan 16 ára og ekki að ástæðulausu.

Að lokum ætla ég að hvetja alla sem hafa ekki séð myndina að vera ekkert að fara á hana, hún er þvílík vonbrigði, jafnvel verri en önnur myndin.  


Það vantar yfirlýsingu KSÍ í þessa frétt.

Það vantar alveg yfirlýsingu KSÍ í þessa frétt en hún er svohljóðandi:

"Knattspyrnusamband Íslands fagnar því að forystumenn ÍA og Keflavíkur hafa náð niðurstöðu vegna atviks sem átti sér stað í leik liðanna í Landsbankadeild 4. júlí sl.  KSÍ harmar að markið umdeilda  sem samræmist ekki heiðarlegum leik, hafi ráðið úrslitum í leiknum og fer fram á það við leikmenn Knattspyrnufélags ÍA að slíkt endurtaki sig ekki.  Jafnframt hvetur KSÍ leikmenn, forystumenn og stuðningsmenn liða til þess að halda vöku sinni og standa vörð um heiðarlegan leik.  Með eftirfarandi málalyktum  ÍA og Keflavíkur er máli þessu lokið af hálfu KSÍ."

Með öðrum orðum. Það er mat KSÍ að leikmenn ÍA sýndu óheiðarlegan leik og þess er krafist að leikmenn ÍA geri slíkt ekki aftur.


mbl.is Mark ÍA stendur og sættir hafa náðst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ósköp einfalt.

Þetta er ósköp einfalt. Ísland á að sækja um aðild að Evrópusambandinu og ganga til samninga við það. Ef að samningarnir verða ekki okkur hagstæðir þá göngum við ekki í Evrópusambandið. Ef við fáum aftur á móti góðan samning þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að ganga í Evrópusambandið.

Við vitum ekki hvað það kostar okkur að ganga í Evrópusambandið fyrr en við förum að semja um það.


mbl.is Olli Rehn: Umsókn Íslendinga um aðild að ESB yrði fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband