Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Vilhjálmur dýr fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík.

Enn einu sinni sannast hversu slakur leiðtogi Vilhjálmur er fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Að borgarstjórnin hefur 9% stuðning er ótrúlegt. Það sem er núna er að gerast í Reykjavík er ekki fyrsta axarskaftið sem Vilhjálmur sem gert Sjálftæðisflokknum, því í vikunni var opinberað að Vilhjálmur kom í veg fyrir að Árni Sigfússon yrði borgarstjóri á sínum tíma og var Markús Örn ráðinn í staðinn, var síðan kallað aftur á Árna þegar allt var komið í óefni í borginni. en honum tókst ekki að bjarga Sjálfstæðiflokknum og flokkurinn missti völdin í Reykjavík. Það má segja að Vilhjálmur sé að klúðra aftur hlutunum illilega fyrir Sjálfstðiflokknum og spurningin er hversu lengi ætlar flokkurinn að bakka upp þennan mann sem er að klúðra málunum aftur fyrir flokknum.


mbl.is Aðeins 9% treysta borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottar fréttir.

Það eru flottar fréttir að senda Litháísku glæpamennina til baka til Litháens. Enda finnst mér óeðlilegt að menn sem koma hingað til lands til að fremja sín afbrot, skuli vera verðlaunaðir með íslenskum fangelsum. Enda sagði fangelsisstjóri um daginn að afbrotamenn frá vissum löndum hafa engu að tapa þegar þeir fremjha afbrot. Ef þeir komast upp með það, þá er það hið besta mál fyrir þá. Ef þeir eru teknir og lenda í íslensku fangelsi, þá eru þeir í fínu húsnæði í ágætu fæði og í vinnu þar sem þeir hafa mun hærri laun en þeir myndu fá í heimalandinu.

Þessi regla hefur verið í lýði í fleirum löndum og það komst í fréttirnar fyrir nokkrum árum að maður frá fyrrum Sovétlýðveldi sem hafði setið í sænsku fangelsi. Það stóð til að flytja hann til heimalands síns og til að þurfa ekki að fara í slíkt fangelsi, þá drap maðurinn samfanga sinn og losnaði þar með við framsal, þar sem menn með mjög alvarleg afbrot voru ekki framseldir. Maðurinn kaus frekar að sitja inn í sænsku fangelsi í 25 ár, heldur að sitja inni í sínu heimalandi í 5 ár.

Þá er bara næsta mál fyrir Björn að semja við fleiri lönd um framsal og legg ég til að Pólland verði næst í röðinni.


mbl.is Litháískir fangar til Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta það sem við viljum.

Núna var ég að lesa yfir fréttir hér á mbl.is og mér finnst fréttirnar ekkert góðar. Pólskur karlmaður að káfa á 11-12 ára stelpum í Sundmiðstöðinni í Keflavík, tveir brasilískir karlmenn að staðnir að því að setja óþekkt lyf í glös stúlkna á skemmtistað. Tveir Litháar sitja í gæsluvarðhaldi þar til dómar falla yfir þeim. Í gær var fréttir af tveim erlendum mönnum sem voru staðnir af því að brjótast inn í skartgripabúð og stela þaðan miklum verðmætum og reyndu síðan að stinga lögregluna af með ofsaakstri í gegnum íbúðarhverfi. Ekki er langt síðan að ölvaður pólskur maður keyrði á barn í Keflavík með þeim afleiðingum að það dó, hann stakk af vettvangi og hafði engan áhuga á að huga að heilsu barnsins.

Þetta eru bara nokkrar fréttir sem ég man eftir í augnablikinu um ofbeldisverk innflytjenda að undanförnu, en er öllum sama um að jafnvel dæmdir ofbeldismenn koma til landsins og hefja nýja lífið sitt hér með ofbeldisverkum og þjófnuðum? Af hverju er ekkert gert í málunum og jafnvel maður sem er sakaður um jafn alvarlegan glæp og að verða valdur að dauða barns er leyft að fara úr landi án þess að þurfa að sæta ábyrgð gerða sinna. Ég get ekki skilið þetta.

Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að það eru ekki bara útlendingar sem fremja afbrot á Íslandi, en við höfum bara fullt í fangi með að eiga við íslenska afbrotamenn og eigum ekki þurfa að flytja inn glæpamenn frá austur Evrópu né annarsstaðar frá. Ég þekki nokkra Pólverja sem búa hérlendis og þeir eru hinir bestu menn. Það sem þeir segja um þessa afbrotamenn sem flykkjast til Íslands eru áhugavert, en þeir eru mjög mótfallnir þeim og vilja herða reglurnar sem myndi gera þekktum afbrotamönnum erfitt fyrir að koma til landsins til að vinna. Þetta eru Pólverjar að tala um aðra Pólverja og þetta getur því ekki talist kynþáttafordómar.

Núna eru örugglega einhverjir tilbúnir að kalla mig rasista fyrir þessa færslu. Ef það kallast rasisti að vilja landinu sínu það besta, þá er ég sennilega rasisti. Ég er umburðarlyndur gagnvart útlendingum og finnst frábært að fólk skuli flytja til landsins til að hefja nýtt líf og taka þátt í íslensku þjóðfélagi. En ég er ekki umburðarlyndur gagnvart erlendum glæpamönnum sem sjá Ísland sem saklaust land og koma hingað til þess eins að níðast á þjóðfélaginu.

Á meðan erlendir glæpamenn fá að stunda sína glæpi í friði, þá munu fordómar halda áfram að ágerast gegn erlendu fólki. Það dugar ekkert að láta Bubba syngja eitt lag með forsætisráðherra til að allt verði gott og engir fordómar verði til. Það sem þarf að gera til að minnka fordóma er það að það þarf koma í veg fyrir að dæmdir og hættulegir glæpamenn fái að labba inn í landið og setjast hér að án þess að nokkuð sé að gert. Það þarf að hjálpa þeim útlendingum sem vilja setjast hér að til aðlagast þjóðfélaginu og taka þátt í því. Ísland er frábært land og útlendingar sem vilja búa hér og taka þátt í þjóðfélaginu eru velkomnir, en ég vil ekki sjá þá sem koma hingað til að fremja sín afbrot. Þeir mega vera heima hjá sér áfram, Ég er umburðarlyndur gagnvart útlendingum, en ekki gagnvart glæpamönnum.


One Hit Wonder. -5.sætið.

Í fimmta sæti yfir mestu One Hit Wonder lög allra tíma er lagið What's Up með 4 Non Blondes. Hljómsveitin var stofnuð árið 1989 af fjórum dökkhærðum konum og þannig kom nafnið til. 4 Non Blondes náði að gefa út tvær plötur áður en hún lagði upp laupanna árið 1995. Lagið What's Up kom út á seinni plötunni sem kom út árið 1993 og varð lagið að stórsmelli og eina smelli hljómsveitarinnar. Þegar hljómsveitin leystist upp þá reyndi söngkona 4 Non Blondes, Linda Perry að hefja sólóferil án þess að ná koma með annan smell.

What's Up með 4 Non Blondes.

Ný skoðanakönnun.

Ég var að setja inn nýja skoðanakönnun og þar spyr ég í tilefni konudagsins, hvaða lykt þykir þér mest sexý í fari hins kynsins. Valmöguleikarnir eru 3, sápu/sjampólyktin, Ilmvatns/rakspíralyktin og líkamslyktin.

Í síðustu könnun spurði ég, ef einræðisherra myndi ná völdum á Íslandi, hvort myndir þú vilja fá Jóhönnu Sigurðardóttir eða Pétur Blöndal sem einræðisherra. 229 kusu og vildu 65% fá Jóhönnu sem einræðisherra og 35% vildu fá Pétur Blöndal sem einræðisherra og kemur það mér mjög á óvart að svo margir myndu vilja fá Pétur sem leiðtoga Íslands.


Wenger ætti að líta sér aðeins nær.

Ég er sammála öllum um að brotið hafi mjög ljótt. En ég get ekki séð að það hafi verið ásetningur hjá Martin Taylor að fótbrjóta Eduardo. Rautt spjald er réttur dómur og 3-5 leikja bann eðlileg refsing miðað við það sem gengur og gerist í fótboltanum. En ef það á að fara taka harðar á svona brotum og þyngja refsingar þá er það bara hið besta mál, en menn mega ekki missa sig í yfirlýsingunum eins og Wenger geri. Ef Martin Taylor á ekki að spila fótbolta framar vegna brotsins, þá á Emmanuel Eboue ekki heldur að fá að spila fótbolta framar, hann hefur kannski ekki orðið uppvís að einu broti sem hefur kostað einhvern svona mikil meiðsli, en hann hefur slasað marga og oftast með glæfralausum og hættulegum tæklingum.


mbl.is Wenger: Þessi maður á ekki að spila fótbolta framar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush leyfir Tyrkjunum að drepa Kúrda!

tyrklandTyrkneski herinn virðist loksins vera búinn að fá leyfi hjá Bandaríkjamönnum til að ráðast á kúrdísku þjóðina. Þeir eru búnir að vera bíða lengi eftir þessu leyfi og hafa staðið í hótunum við Bandaríkjamenn vegna þess að þeir hafa ekki viljað samþykkja dráp Tyrkja á Kúrdum. Núna láta þeir Bandaríkjamenn vita með fyrirvara um árásina og fá samþykki með því skilyrði að ráðast bara gegn PKK (Verkamannaflokki Kúrda).

Mikið rosalega eru Tyrkirnir heppnir að PKK var stofnað. En PKK var stofnað til að berjast gegn útrýmingarstefnu Tyrkja og hafa því miður farið niður á sama plan og Tyrkirnir með því að drepa saklausa íbúa og þar með geta Tyrkirnir kallað PKK hryðjuverkasamtök. En Tyrkirnir segja að árásin í gær hafi ekki verið "meiriháttar aðgerð". Þá er það spurningin, hvað telja Tyrkir "meiriháttar aðgerð"? Var það meiriháttar aðgerð þegar Tyrkneskir hermenn drápu eina og hálfa milljón Armena á síðustu öld?


mbl.is Uppreisnarmenn eltir uppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skvass og Slátur, góð blanda.

Það er sagt að leiðin að hjarta mannsins sé í gegnum magann á honum, það veit Fjóla og er hún dugleg að elda kræsingar ofan í mig. Það hefur leitt til þess að hjartað mitt hefur stækkað og maginn líka og núna er komið að því að minnka magann án þess að láta það bitna á hjartanu. Núna er Fjóla byrjuð á að draga mig í líkamsrækt og erum við farin að stunda skvass af kappi. Í kvöld fórum við í einn tímann og núna sit ég gjörsamlega búinn á því og rétt næ að pikka inn nokkrar línur hér. En mikið er þetta gott að hreyfa sig svona og fá smá tækifæri að svitna.

Eins og góðri konu sæmir þá verðlaunaði Fjóla mér fyrir mikið púl með góðum mat, kannski ekki þeim hollasta í heimi, en sennilega einum þeim þjóðlegasta í heimi. Því í kvöld var borðað slátur með kartöflumús að hætti forfeðranna okkar og ég sit hér gjörsamlega búinn á því eftir átið! Ég er alla vega búinn á þvi eftir skvassið og átið.

Við vorum svo klár að við bókuðum tíma aftur á laugardagsmorguninn í skvassið og þá verður tekið á því og kannski spilum eftir skvass-reglunum þá, en við höfum farið ansi frjálslegar með allar reglur. Enda snýst þetta ekki hjá okkur um að vinna, heldur að vera með og koma sér í form fyrir sumarið og hjólreiðatúrana og að sjálfsögðu að komast í svo gott form að ég get haldið áfram að borða matinn hennar Fjólu.


Ekki fyrsta rauða spjaldið hjá Materazzi.

Liverpool vann Inter í kvöld 2-0 eftir að hafa spilað einum fleiri frá 30 mínútu, en þá var varnarjaxlinn Marco Materazzi rekinn af leikvelli. Þetta var ekki fyrsta rauða spjaldið sem Materazzi fær á ferlinum. Hér fyrir neðan er myndband af nokkrum af þeim brotum sem Materazzi hefur framið á knattspyrnuvellinum.

 


mbl.is Liverpool sigraði Inter 2:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómafullir Danir.

Mér finnst Danirnir vera fordómafullir og sýna mikið útlendingahatur gagnvart Íslendingum með því að tilgreina þjóðerni Íslendinganna. Þetta er smá  kaldhæðni hjá mér, þar sem að á Íslandi verður allt brjálað ef fjölmiðlar segja frá því að afbrotamennirnir séu erlendir. Ég er ekki sammála þeim sem halda því fram að með því að tilgreina þjóðerni afbrotamanna beri það vitni um fordóma og útlendingahatur, heldur sé það hluti af fréttinni.


mbl.is Feðgar handteknir fyrir líkamsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband