Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Einni spurningu er ósvarað.

Snati og GormurÉg horfði á Gettu Betur í kvöld og var nokkuð spenntur. Keppnin var spennandi og bæði lið geta verið stolt af sinni frammistöðu. En það var samt eitt sem angraði mig við keppnina og náði næstum því að skemma keppnina fyrir mér. Í keppninni var spurt um stofnun og var rétt svar Veðurtofa Íslands. Það sem angraði mig var það að Páll Ásgeir dómari sagði að hægt væri sjá fyrir veðrið með því að fylgjast með kisum og nefndi sérstaklega sem dæmi að fólk ætti að fylgjast sérstaklega vel með hvernig kisurnar þvæðu sér á bak við eyrun. Þegar hann sagði þessi orð þá leit ég á kisurnar mínar, þær Snata og Gorm og viti menn þær voru báðar að þvo sér á bak við eyrun. Núna spyr ég, hvað ætli þetta þýði?


mbl.is MR vann eftir bráðabana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úpps. Ég villtist í þrjá daga!

Ég hef grun um að það sé eitthvað að hjá þessari blessaðri konu. Fólk villist ekki bara í 3 daga og ráfar um borgina í leit að hótelinu sínu. Ef ég myndi villast svona þá myndi ég spyrja til vegar. En hún kerlingargarmurinn hefur greinilega ekki haft vit á því og þetta er ekki fyrsta sinn sem hún ferðast.

Ég meina konan er góðgerðarsendiherra Sameinuðu Þjóðanna og hún var í Brussel til að taka þátt í ráðstefnu um kvenréttindi og hún átti að vera ein af aðalræðumönnunum. Þetta var engin smá ráðstefna, meðal ráðstefnugesta var Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna og fleiri valdamiklar konur. Þetta hefði verið kjörinn staður fyrir Dirie að koma baráttumálum sínum á framfæri, en úppps hún villtist í 3 daga og komst ekki!

Ég tel að Waris Dirie hafi sýnt það núna að hún eigi það ekki skilið að vera sendiherra hjá Sameinuðu Þjóðunum, annað hvort er hún nautheimsk eða að hún eigi við alvarlegri vandamál að etja.


mbl.is Waris Dirie hvarf í þrjá daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

One Hit Wonder. -3.sætið.

Í þriðja sæti yfir stærstu One Hit Wonder lög allra tíma er lagið Come On Eileen með ensku hljómsveitinni Dexy Midnight Runners. Lagið kom út árið 1982 og varð söluhæsta breska lagið það árið. Dexy Midnight Runners var stofnuð í Birmingham 1978 og starfaði til ársins 1986, hljómsveitin var síðan endurvakin 2003 og er enn starfandi. Come on Eileen var samið af "Big" Jim Paterson, Billy Adams og söngvara hljómsveitarinnar Kevin Rowland.

Það eru kannski nokkrir sem að telja að þetta lag geti ekki talist til One Hit Wonder, þar sem Dexy Midnight Runners náði að koma laginu Geno á topp breska vinsældarlistans í apríl 1980, tveim árum áður en Come On Eileen kom út, en hver man eftir því lagi?

Það má líka segja frá því að nafn hljómsveitarinnar er komið frá vinsælu eiturlyfi, Dexedrine sem var vinsælt á þessum tíma og Midnight Runners er komið til vegna þess að þeir sem tóku Dexedrine áttu að fá orku og kraft til að dansa alla nóttina.

Come On Eileen með Dexy Midnight Runners.


Undur og stórmerki, ég er sammála Bush!

Í einu af örfáum skiptum er ég núna sammála George Bush. Farc eru skæruliðasamtök sem hafa fengið að vaða uppi alltof lengi í S-Ameríku. Núna þegar Farc-samtökin hafa fengið öflugan samherja sem er Hugo Chavez forseti Venezulea, þá eru þeir byrjaðir að færa sig upp á skaftið. Sem betur fer gera flestir sér grein fyrir hvers konar mann Chavez hefur að bera, hver man ekki eftir því þegar Jóhann Karl konungur Spánar sagði Chavez að halda sér saman á ráðstefnu ríkja í Rómönsku Ameríku í haust. Þannig að þó Farc telja sig hafa öflugan bandamann, þá er Chavez einangraður í S-Ameríku og fer vonandi sem fyrst frá völdum.


mbl.is Bush styður forseta Kólumbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekið af síðunni minni?

Einhvern finnst mér eins og heimildirnar séu komnar af síðunni minni, enda bloggaði ég um afmælisbarnið í gærkvöldi, sjá hér.


mbl.is Leatherface á afmæli í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisbarn dagsins: -Gunnar Hansen.

Gunnar HansenÍ dag á Gunnar Hansen afmæli og er hann 61 árs í dag. Gunnar fæddist í Reykjavík 4. mars 1947, 5 ára gamall fluttist hann til Bandaríkjanna. Bjó fyrst um sinn í Maine en fluttist til Texas 11 ára gamall og gekk þar í skóla og lauk háskólanámi. Árið 1973 heyrði Gunnar að til stæði að taka mynd i heimabæ hans og sótti hann um hlutverk í myndinni og fékk eitt aðalhlutverkið, sjálfan Leatherface og myndin var hin klassíksa cult-mynd The Texas Chainsaw Messacre.

Myndin sló í gegn og varð ein af Leatherfacefyrstu hryllings-cult-myndunum, nýtur myndin en þann dag í dag gífurlegra vinsælda hjá ákveðnum hópi kvikmyndaáhugamanna. Myndin var mjög ódýr í framleiðslu, kostaði bara 83.000 dollara eða um fimm og hálfa milljón íslenskra króna. En myndin halaði inn bara í Bandaríkjunum um 45 milljónum dollara eða um 3 milljarða króna.

texas chainsaw massacreGunnar lék næst í myndinni Demon Hunter, en eftir það ákvað Gunnar að hætta að leika og hafnaði hann meðal annars hlutverki í myndinni The Hills Have Eyes, en hún átti eftir að verða cult-mynd líka. Gunnar sneri aftur á hvíta tjaldið 1987 í hryllingsmyndinni Hollywood Chainsaw Hookers og síðan þá hefur Gunnar leikið í meira en 20 myndum, myndum eins og Freakshow, Hellblock 13, Witchunter, Next Victim, Chainsaw Sally og Murder-set-pieces. Á þessu ári eru væntanlegar tvær myndir með honum, It Came From Trafalgar og Reykjavík Whale Watching Massacre, sem er leikstýrð af Júlíusi Kemp og er handritið skrifað af Sjón.


One Hit Wonder. -4.sætið.

Í fjórða sæti yfir stærstu One Hit Wonder lög allra tíma er lagið 99 Luftballons með hinni þýsku Nenu. Lagið kom upphaflega út árið 1983 og komst í toppsætið á velflestum vinsældarlistum um allan heim, sem var óvenjulegt þar sem lagið var sungið á þýsku. Nena endurútgaf lagið 1984 og þá í enskri útgáfu og hét lagið þar 99 Red Ballons. Fjöldi hljómsveita hafa endurútgefið lagið og þá heyrist lagið reglulega í bíómyndum og sjónvarpsþáttum.

Nena er enn að syngja og er að gefa út efni, er hún nokkuð vinsæl í þýskumælandi löndum, en 99 Luftballons er eina lag Nenu sem hefur orðið vinsælt á heimsvísu. Þá hefur Nena reynt að leggja leiklistina fyrir sig með þokkalegum árangri í Þýskalandi.

Nena með 99 Luftballons.


Björgum raunverulegum menningarverðmætum.

GullfaxiÁ sama tíma og kóngarnir í Reykjavík, þeir Vilhjálmur og Ólafur eru tilbúnir að eyða 1.000 milljónum í að endurgera ónýta og ómerkilega húskofa, þá eru ekki til peningar til að borga 80 milljónir fyrir fyrstu þotu Íslands. Ég tel sögu Gullfaxa mun merkilegri en hjallanna á Laugarvegi 4-6. Þetta er fyrsta þota landsins og er upphaf þess að Íslendingar gátu farið að ferðast á þægilegan og einfaldan hátt. Það má segja að Gullfaxi sé nokkurs konar merki þess að landið sé ekki lengur einangruð eyja, heldur eyja í alfaraleið. Ég legg til að Gullfaxa verði bjargað.

Á vef Víkurfrétta er áhugaverð umfjöllun um vélina.


mbl.is Fyrsta þota Íslendinga í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mike Smith látinn.

Mike SmithÁ fimmtudaginn síðastliðinn lést breski tónlistarmaðurinn Mike Smith 64 ára að aldri. Mike er þekktastur fyrir að hafa verið aðalsöngvari hljómsveitarinnar Dave Clark Five á meðan hljómsveitin starfaði á árunum 1957-1970. Dave Clark Five var talin aðalkeppinautur Bítlana um hylli unga fólksins þar til að Rolling Stones kom á sjónarsviðið, þegar Bítlarnir slógu í gegn þá fylgdi Dave Clark Five þeim eins og skugginn og komust í 6 sæti bandaríska vinsældarlistans með þekktasta lagi sínu, Glad All Over árið 1964 og í kjölfarið fylgdu mörg lög inn á bandaríska vinsældarlistann. Í desember 1965 komst lagið Over And Over í efsta sæti bandaríska vinsældarlistans.

Eftir að Dave Clark Five lagði upp laupana þá byrjaði Mike Smith að starfa sem lagahöfundur og útgefandi. Hann flutti til Spánar seint á tíunda áratuginum og stofnaði þar hljómsveit ásamt fjórum öðrum tónlistarmönnum sem höfðu sömu áhugamál og Mike, það er að spila vegna ánægjunnar. Mike til mikillar furðu þá komst hann að því að hann átti marga aðdáendur og vakti nýja hljómsveitin hans mikla athygli. Í júlí 2003 missti Mike son sinn í slysi þar sem hann var æfa sig í dýfingum og hafði dauði sonarins gríðarleg áhrif á Mike. Einungis tveim mánuðum síðar slasaðist Mike alvarlega þegar hann féll á heimili sínu og hlaut hann varanlegan mænuskaða og lamaðist fyrir neðan mitti, hann gat ekkert beitt hægri hendinni eftir slysið og hafði lítinn mátt í þeirri vinstri. Eftir 4 ára baráttu var Mike loks útskrifaður af sjúkrahúsi á 64 ára afmælisdeginum sínum 6.desember síðastliðnum. Hann lést síðan 28. febrúar 2008 vegna lungnabólgu og má rekja dauða hans til slyssins í september 2003.

Mike Smith lést einungis 11 dögum áður en það átti að taka hann formlega inn í Rock And Roll Hall Of Fame.

Lagið Glad All Over er vinsælasta lag Dave Clark Five. Á sjöunda áratuginum gerðu stuðningsmenn Crystal Palace lagið að sínu stuðningsmannalagi og þó að aðrir stuðningsmenn hafa reynt að gera lagið að sínu, þá er lagið eins samofið Crystal Palace og You'll Never Walk Alone er Liverpool.

Glad All Over, myndskreytt af stuðningsmönnum Crystal Palace.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband