Færsluflokkur: Bloggar
Gleðilegt sumar.
24.4.2008 | 07:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Er ekki verið að handtaka vitlausan mann?
22.4.2008 | 16:25
Voða finnst mér vera skrýtið að flutningabílstjórar mega mótmæla nánast eins og þeim sýnist, loka heilum götum á þeim tíma að skapist sem mest vandamál. Eina sem gerist hjá þeim er það að lögreglumenn tala við þá og þeir fá sér í nefið og allir eru vinir. Síðan þegar einhver mótmælir bílstjórunum, þá er hann handtekinn. Reyndar vil ég ekki verja manninn ef hann hefur skemmt bíla og verið stjórnlaus eins og fram kemur í fréttinni, en mikið skil ég manninn vel.
Ég hef grun um að flutningabílstjórar haldi að allir sem eru í umferðinni séu að rúnta nema þeir og þess vegna skipti það engu máli þó þeir loki stofnæðum. Alltaf þegar ég heyri fréttir af þessum mótmælum hjá flutningabílstjórum þá hugsa ég til þeirra daga sem ég hef þurft að fara með Hugin með hraði á Barnaspítalann, ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég hefði lent í einhverjum mótmælum og þurft að bíða jafnvel í klukkutíma vegna þess að flutningabílstjórar voru að mótmæla háu heimsverði á bensíni.
Eitt sinn var ég að fara með Hugin á Barnaspítalann í læknisskoðun og þegar ég nálgast Grindavíkurafleggjarann þá er lögreglan búin að loka Reykjanesbrautinni. Eftir að hafa beðið í um 10 mínútur hringi ég í neyðarlínuna til að fá upplýsingar um lokunina og hversu lengi brautin verður lokið og ég fæ fá svör. Skömmu síðar kemur rúta keyrandi í lögreglufylgd frá Grindavík og beygir í átt til Keflavíkur og þegar þessi rúta er búin að beygja er brautin aftur opnuð og ég get keyrt áfram til Reykjavíkur (rútan fór til Keflavíkur þannig að við vorum ekki einu sinni á sömu leið). Seinna heyri ég að ástæðan fyrir því að Reykjanesbrautin var lokuð í um það bil 20 mínútur var vegna þess að forseti Djíbútí þurfti að keyra um þessi gatnamót!
Ég skil heldur ekki alveg hvað flutningabílstjórar eru að mótmæla háu eldsneytisverði, þegar eldsneyti er einna lægst í Evrópu á Íslandi. Þeir hafa verið duglegir að blása það út að eldsneyti sé hærra á Íslandi en í Noregi miðað við laun. Eflaust er það rétt, en það er hægt að miða bensínverð við marga hluti og er ég nokkuð viss að í meirihluta tilfelli þá kæmi Ísland vel út úr þeim verðsamburði. Ástæðan fyrir háu bensínverði er hátt heimsmarkaðsverð og það að OPEC ríkin vilja ekki auka framleiðslu sína á olíu og þar með heldur verðið áfram að hækka. Ríkisstjórnin getur lítið gert í því. Síðan eru flutningabílstjórar með verulegan afslátt af eldsneytisverði og fá þar að auki virðisaukaskattinn endurgreiddann. Ég held að flutningabílstjórar séu fyrst og fremst að mótmæla vökulögunum og kílómetragjaldinu og láta það hljóma eins og þeir séu að mótmæla háu eldsneytisverði til að fá almenning með sér. Ég vil líka minna á að Sturla yfirmótmælandi flutningabílstjóranna, Sagði að honum fyndist eðlilegt að bensínverð væri í kringum 100 krónum eins og ástandið er í dag. Heldur einhver að það geti gengið þegar bensínverðið er til dæmis yfir 170 krónur í Frakklandi.
![]() |
Missti stjórn á skapi sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég á kisuhetju.
21.4.2008 | 23:20
Ég á tvær kisur, það eru systkinin Snati og Gormur og eins og diggir lesendur þessa blogg vita, þá er Snati læða og Gormur er fress. Það var á mánudaginn í síðustu viku að við uppgötvuðum að eitthvað væri í gangi fyrir utan hjá okkur. Við hleyptum kisunum út í garð. Snati fór strax undir sólpallinn sem er enn í smíðum og stuttu síðar heyrist mikil óhljóð undan honum og kötturinn kom hlaupandi á hraðaspretti undan pallinum og hljóp inn í þar næsta garð, vegna þess að þar er stærsta tréið í hverfinu. Hún rauk upp í tréið og prílaði alveg upp í topp eða í um 4 metra hæð. Gormur skildi hvorki upp né niður í þessu, því yfirleitt nennir Snati ekki neinu nema að láta klappa sér, borða og sofa. Eftir að Gormur hafði horft á eftir Snata upp í tréið skellti hann sér undir pallinn og þá uppgvötvuðum við að undir pallinum væri villikisa (skilgreining á villikisu = allar kisur nema Snati og Gormur).
Hófust mikil læti undir pallinum, það var hvæst og urrað og bönkin gáfu til kynna að slagsmál væri í gangi, eftir örfáar mínútur kom villikisan stökkvandi undan pallinum og tók garðinn í tveim stökkum og var kominn yfir götuna og í móann hinum megin, allt í tveim stökkum. Á meðan fylgdist Snati með öllu, skjálfandi í 4 metra hæð. Stuttu síðar kom Gormur undan pallinum töluvert skítugur og með smá áverka á trýninu. Síðan þetta gerðist hefur villikisan ekki látið sjá sig og sárið á Gormi er ógróið. Þrátt fyrir óskir okkar þá heldur Gormur alltaf áfram að sleikja á sér trýnið og rífur upp sárið.
Í kvöld gerðist það síðan að önnur óboðin villikisa kom í garðinn okkar og Gormur stækkaði ógurlega og fór að reyna að reka villikisuna í burtu. Það gekk frekar illa Kisurnar vældu og öskruðu eins og lítil börn og báðar reyndu að gera sig stærri og öskra hærra. Ég fór út í garð til að veita Gormi stuðning minn, ekki þýddi fyrir hann að treysta á Snata sem var skjálfandi út í glugga og fylgdist með öllu. Þegar ég kom út í garð stökk villikisan í burtu og Gormur á eftir henni og ég á eftir honum. Þegar villikisunni leist ekki lengur á blikuna rauk hún í burtu og hvarf augum okkar og Gormur kom labbandi sigurreifur til baka. Var þvílíkt stoltur af sér, talandi ekki um vegna þess að pabbi hans fylgdist með þessum hetjuburðum hans.
Ég var að gera mér grein fyrir því að ég á tvær kisur, eina hetjukisu og síðan Snata.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég vil bjarga Íslandi og ganga í Evrópusambandið.
20.4.2008 | 10:51
Ég vil að Ísland hefji undirbúning að aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem fyrst. Ég hef verið þeirra skoðunar lengi að Ísland eigi að fara í viðræður um fulla aðild. Það sakar nefnilega ekki að reyna að semja um inngöngu í Evrópusambandið, ef við fáum ekki fullnægandi samning þá göngum við ekki í sambandið, einfalt mál.
Á undanförnum vikum þá hef ég styrkst enn frekar í mínum skoðunum um að það sé það eina rétta að sækja um aðild að Evrópusambandinu, það aðallega vegna lélegs efnahagsástands á Íslandi. Það er mín skoðun að ástæða fyrir gengislækkun íslensku krónunnar sé sú að það eru óhæfir menn sem stjórna í Seðlabankanum. Þeir virðast halda að eina leiðin þegar krónan fellur sé að hækka stýrivexti, en það eru ansi margir sammála mér í því að ástæðan fyrir því að krónan falli sé einmitt háir stýrivextir. Þannig að hinu háu herrar í Seðlabankanum halda áfram að pissa í skóinn og framlengja vandanum og gera hann enn meiri. Því lengur sem stýrivextirnir eru svona háir því hærra verður fallið á dómsdegi.
Ég vil að Ísland gangi í Evrópusambandið ef við náum þokkalegum samningi um það. Þá fyrst getum við farið að búa við eðlilegar efnahagsaðstæður sem eru ekki stjórnaðar af uppgjafarstjórnmálamönnum, sem hafa lítið annað sér til ágætis. Ég vil að Ísland komist undir almennilega peningastjórn áður en landinu verður sigld í þrot.
![]() |
67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Við hagsmunaaðilar vonum að óvissunni í Zimbabwe ljúki fljótlega.
20.4.2008 | 09:47
Ég vona að talningin tefjist ekki meira en orðið hefur, ég hef nefnilega hugsmuna að gæta. Þeir sem þekkja mig vel vita að ég hef smá söfnunaráráttu og hún fellst í því að ég safna peningum. Ég er ekki samt eins og Jón Ásgeir eða Björgólfur Thor. Ég er eiginlega frekar eins og gömlu karlarnir sem safna pennum eða kveikjurum. Ekki alls fyrir löngu efnaðist ég verulega þegar ég eignaðist mína fyrstu 10 milljón dollara. Það eru reyndar Zimbabwe dollarar sem eru víst ekki jafn traustir og Bandaríkja dollarinn og gengið á Zimbabwe dollaranum er eitthvað skráð lægra. En það skiptir ekki máli fyrir mig, ég á 10 milljón dollara og vill fá niðurstöðu í þessar kosningar.
Vissuð þið að þegar peningar eru prentaðir í Zimbabwe þá eru þeir með 6 mánaðar líftíma. Það er prentað á peningana sem eru núna í gildi, "tekur gildi 1. janúar 2008, rennur úr gildi 30. júní 2008". Það þýðir lítið að geyma peningana undir kodda í Zimbabwe, enda fengi maður hálsríg af því ef maður ætti einhverja upphæð.
![]() |
Hugsanlegt að talning tefjist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ferðamannaparadísin St. Martin. En hver vill fljúga þangað?
18.4.2008 | 21:11
St. Martin er eyja í Karabískahafinu sem byggir nánast alla sína afkomu á ferðamönnum. Eyjan hefur verið tvískipt síðan 1648 þegar Hollendingar og Frakkar sömdu um að skipta eyjunni á milli sín. Eyjan er 87,2 ferkílómetrar og búa á henni 85.000 manns. Eyjan þykir ægifögur og frábær ferðamannaparadís, enda koma yfir ein milljón ferðamanna á hverju ári. Meðalhiti á St. Martin er 27 gráður. Hitinn getur farið niður í 17 gráður og fer sjaldan yfir 35 gráðurnar. Ekki þykir verra að fara að versla á eyjunni þar sem enginn skattur er lagður á vörur og eru merkjavörur á eyjunni allt að 40% ódýrari en í Bandaríkjunum.
Núna kemur að slæmu fréttunum. Í nóvember 2006 var opnaður nýr flugvöllur á St. Martin, Princess Juliana flugvöllurinn og er hann þekktur fyrir það hversu stutt flugbrautin er, en hún er einungis 2.130 metrar sem er eiginlega of stutt fyrir stórar flugvélar. Þess vegna er eyjan einna þekktust í dag fyrir glæfrarlegt aðflug og á hverjum degi fara fjöldinn allur af ferðamönnum á ströndina við flugbrautina til að fylgjast með flugvélum lenda. Ég setti inn myndband sem sýnir flugvél lenda á flugvellinum og spyr, hver vill fara til St. Martin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Afmlisbarn dagsins: -Anthony Michael Hall.
14.4.2008 | 19:34
Þar sem ég er núna kominn til landsins og nenni ekki alveg að blogga um Lundúnarferðina mína sem tókst æðislega. Þá ætla ég að koma með smá blogg um afmælisbarn dagsins, Anthony Michael Hall.
Hann var reyndar skírður því langa nafni Anthony Michael Thomas Charles Hall og fæddist í West Roxbury í Massachusetts þann 14. apríl 1968 og er því 40 ára gamall í dag. Anthony vakti fyrst athygli þegar hann lék í myndinni National Lampoon's Vacations árið 1983 ásamt Chevy Chase, Beverly D'Angelo, Randy Quaid, Christie Brinkley, John Candy og fleiri þekktum leikurum. Ári seinna sló hann í gegn í unglingamyndinni Sixteen Candles og ári síðar komu tvær þekktustu myndi Anthonys, Breakfast Club og Weird Science. Í kjölfarið fór að halla undir fæti hjá honum, aðallega vegna þess að hann átti erfitt með að velja réttu hlutverkin, til dæmis þá hafnaði hann bæði aðalhlutverkinu í Ferris Bullere's Days Off og Pretty in Pink, en valdi þess í stað að leika í myndum sem vöktu litla athygli.
Af mörgum lélegum ákvörðunum, þá ber sú ákvörðun hæst í ferli Anthonys þegar hann hafnaði hlutverki Gomer Pyles í mynd Stanleys Kubricks, The Full Metal Jacket. Síðan þá hefur ferill Anthonys verið frekar viðburðarlítill. Hann sneri sér meðal annars í leik í framhaldsþáttum og koma fram í þáttum eins og "Tales From Crypt", "NYPD Blues" og fleirum þáttum. Ferill hans fór sennilega lægst þegar hann lék gestahlutverk í þáttunum, "Murder, She Wrote" með Angelu Lansbury í aðalhlutverki.
Núna er lífið aftur farið að ganga á betri veg fyrir Anthony Michael Hall, þar sem hann fékk aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum "Dead Zone". Hafa þættirnir gengið mjög vel og hefur frægðarsól Anthonys risið töluvert aftur. Vonandi nær Anthonys að halda frægðarsólinni sinni áfram á lofti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
London Calling.
10.4.2008 | 00:10
Núna er ég að á leið til Lon og Dons ásamt Fjólunni. Við skipulögðum þessa ferð í janúar og keyptum flugmiðana og pöntuðum hótelið þá. Það má segja að þetta sé fyrsta fríið okkar Fjólu síðan Huginn fæddist. Við skelltum okkur öll fjölskyldan í sumarbústað í viku síðasta sumar og gekk það ótrúlega vel, er það eiginlega eina fríið sem fjölskyldan hefur átt saman í 3 ár. Ég og Fjóla höfum gert nokkrar tilraunir til að eyða smá tíma í okkur á undanförnum árum og það hefur alltaf eitthvað komið upp á sem hefur orðið til að breyta þeim áætlunum. Við ætluðum að eyða helgi í sumarbústað í byrjun desember, en það breyttist þegar Huginn veiktist og endaði á Hágæsludeildinni á Barnaspítalanum. Við gerðum líka tilraun í fyrravetur að eyða helgi í sumarbústað og það endaði þannig að ég hjúkraði Fjólu í bústaðinum, þar sem hún varð veik.
Við ákváðum að fara til Englands þessa helgi, Huginn átti að vera í Rjóðrinu og við áttum að slappa af í London og nota tækifæri meðal annars til að sjá stórliðið Crystal Palace spila við Scounthorpe. Eftir að Huginn dó þá hafa margir bannað okkur að hætta við ferðina og hafa mamma og tengdamamma verið harðastar við okkur, þær hafa skammað okkur eins og 5 ára börn og sagt að okkur ætti ekki detta í hug að hætta við þessa ferð. Við neyðumst sem sagt að fara í þessa ferð. Nei, án gríns þá kom eiginlega aldrei til greina hjá okkur að hætta við ferðina. Ég held að ef við hefðum hætt við ferðina hefði það orðið til að draga okkur frekar niður. Ég hefði aldrei keypt utanlandsferð á þessum tímapunkti, en þó ég hefði ekki gert það þá held ég að það sé rétt af okkur að fara í þessa ferð.
Núna erum við að fara yfir tékklistann sem ég fékk lánaðann hjá Gerðu bloggvinkonu, ég hef aðeins útfært hann fyrir mig. Farseðill....tjékk. Mynd af Hugin....tjékk. Kreditkort og pin-númer....tjékk. Vegabréf...tjékk. Fjóla...tjékk. Asnaleg kló...tjékk. Myndavél....tjékk. Föt...smá af fötum og restin versluð í London. Góða skapið og spenna...tjékk.
Ég held að ég sé tilbúinn fyrir London.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Útförin.
8.4.2008 | 23:33
Á morgun er vika síðan útför Hugins Heiðars var gerð. Það er ótrúlegt hvað maður þarf að standa í þegar ættingi deyr. Ég hef verið svo gæfusamur að hafa ekki misst mjög náinn ættingja áður og kunni því ekkert til verka, sem betur fer. Þannig var þegar Huginn dó þá ákváðum við að hafa jarðaförina eins og við vildum hafa hana og ekki fara eftir því hvernig aðrir hafa haft jarðafarir eða töldu hvernig við áttum að hafa hana, þó við hlustuðum á öll ráð. Við byrjuðum á að tala við prestinn okkar hann sr. Vigfús Bjarna sjúkrahúsprest á Barnaspítalanum og báðum hann að sjá um athöfnina og var það ekkert mál. Næsta mál var að ráða úrfaraþjónustu og völdum við Útfararþjónustuna ehf. og sáum við ekki eftir því.
Við ákváðum strax að hafa erfidrykkju og þó að margir hefðu sagt okkur að það væri óþarfi og bruðl. En við vorum ákveðin í því að hafa erfidrykkju og töldum okkur hafa þörf fyrir hana, við vildum hitta fólkið sem gaf sér tíma til að kveðja Hugin og við töldum að við þyrftum á öllum stuðningi á að halda þennan dag og ég þakka fyrir að við skyldum halda því til streitu þar sem erfidrykkjan hjálpaði mér mikið. Við vildum líka eiga myndir frá athöfninni og við vildum ekki biðja neinn um að taka myndir fyrir okkur og höfðum við því samband við atvinnuljósmyndara sem kom og tók myndir í kirkjunni og í kirkjugarðinum á eftir.
Við vildum líka hafa fallegan tónlistarflutning og töluðum við því frændurnar hennar Fjóla, Álftagerðisbræður og komu þeir og sungu fallega fyrir Hugin og okkur. Við völdum lögin gaumgæfulega. Sum lögin höfðum við ákveðið fyrir löngu síðan önnur ákváðum við eftir að Huginn dó. Lögin sem voru sungin í kirkjunni voru, Í bljúgri bæn, Snert hörpu mína, Þú styrkir mig (You raise me up), Dvel ég í draumahöll (úr Dýrunum í Hálsaskógi), Kveðja (Sól að morgni eftir Bubba) og sofðu unga ástin mín. Tókst þeim bræðrum frábærlega upp eins og þeim er von og vísa.
Við óskuðum eftir þvi að bara þeir allra nánustu myndi fylgja okkur í kirkjugarðinn og ástæðan var sú að við vildum hafa stutta athöfn þar og hitta síðan alla í erfidrykkjunni. Í kirkjugarðinn komu bara allra nánustu skyldmenni, starfsfólk af Barnaspítalanum enda voru þau öll mjög náin Hugin og síðan örfáir aðilar sem hafa unnið mikið með Hugin eða haft óvenjumikil samskipti við hann.
Við gerðum annað í erfidrykkjunni sem ég hef ekki heyrt að hafi verið gert áður, við settum myndir af Hugin á langflest borðin. Við gerðum það til að fólk sem hafði aldrei séð Hugin eða langt síðan það hafi séð hann gæti séð hversu konar sjarmör hann var. Þessar myndir vöktu mikla athygli og voru margir sem sögðu okkur hvað þetta hefði verið sniðug hugmynd og gaman að sjá hann svona flottann.
Eftir á hyggju þá held ég að við höfum gert allt rétt, við fengum frábæran prest, prest sem hefur þekkt Hugin frá því í október 2005 þegar við komum heim frá Bandaríkjunum og hefur hjálpað okkur mikið í gegnum tíðina. Ákvörðun okkar um að hafa erfidrykkju, fá ljósmyndara og Álftagerðisbræður, takmarka fjöldann í kirkjugarðinn, lagavalið og bara allt var hárrétt hjá okkur. Við munum minnast útfarinnar sem yndislegs dags og mun örugglega hjálpa okkur að minnast Hugins með sól í hjarta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég sakna Hugins.
6.4.2008 | 08:40
Síðustu dagar hafa verið erfiðir og skrýtnir. Maður veit eiginlega ekki hvernig maður á að vera. Stundum hef ég samviskubit yfir því hvað ég er sáttur við andlát Hugins. Þá er ég að meina það hvernig Huginn kvaddi okkur og sína nánustu og allar þær tilviljanir í kringum andlátið, að andlátið á þessum tíma getur ekki verið tilviljun. Ég trúi að Huginn hafi ákveðið að kveðja okkur þennan dag og fyrir það er ég sáttur, ég veit líka að hann fór sáttur og það gerir líf mitt bærilegra. Síðan þess á milli verkjar mér í hjartað yfir söknuðu, að hafa ekki Huginn lengur hjá mér. Að finna ekki lyktina hans, fá ekki að hjálpa honum með að gera magaæfingarnar, ég sakna jafnvel bitsáranna þegar hann náði að bíta mann í öxlina.
Við erum ekki búin að ganga frá dótinu hans Hugins og erum ekkert að fara að gera það strax. Samt saknar maður að hafa ekki vélarnir í gangi hérna, maður saknar að heyra ekki í súrefnisvélunum, B-PAP vélinni eða í monitorinum, þetta voru hljóðin sem maður tengdi við Hugin. Aftur á móti erum við með kveikt á kertum allan daginn hjá okkur og það má segja að það sé mótsögn í því þar sem við gátum ekki verið með kerti þegar Huginn var heima. Þar sem hann var tengdur við súrefnisvélar þá gat myndast eldhætta ef eldurinn kæmist í snertingu við súrefnið. Þess vegna var aldrei kveikt á kertum hérna á meðan Huginn var heima.
Síðasta fimmtudag fórum við á Barnaspítalann til að ganga frá nokkrum málum, það var bæði gott og erfitt. Við hittum meðal annars lækna sem spurðu hvernig okkur gengi að sofa hvort þeir ættu að útvega okkur eitthvað til hjálpa okkur með svefninn. Við sögðum eins og er að svefninn gæti verið betri en við afþökkuðum öll lyf þar sem við viljum frekar að koma hlutunum á rétta braut án lyfja ef það sé mögulegt, en við sögðum lækninum að við ætluðum að kaupa rauðvín og drekka það á laugardagskvöldinu í rólegheitunum. Lækninum fannst það frábært ráð, svo í gærkvöldi sátum við og drukkum rauðvín samkvæmt læknisráði!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)