Ánægður með minn mann.

Ég er ánægður með minn mann að láta Hugo Chavez heyra það. Er ég sannfærður um að Jóhann Karl tali fyrir munn margra þegar hann sagði Chavez að halda kjafti.

Til gamans má geta að ég og Jóhann Karl Spánarkonungur erum góðir félagar eftir að hittumst í heita pottinum í Laugardalslauginni fyrir rúmum 30 árum. Ég hef reyndar ekki hitt hann síðan og hann ekki mig, en ég er nokkuð viss um að hann muni eftir mér eins og ég man eftir honum.


mbl.is Spánarkonungur sagði Chaves að þegja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Já hann man  pottþétt eftir þér og er önuglega oft að hugsa um þig..

Halla Rut , 11.11.2007 kl. 00:59

2 identicon

uhhhh,,,, varstu enn með bleyju? Þú ert so unglegur nebblega

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 23:51

3 Smámynd: Mummi Guð

uuuh. Ég verð að viðurkenna að myndin af mér á þessari síðu er ekki alveg ný. Þó langt sé liðið, þá man ég vel eftir þegar kóngurinn kom í laugina. Þannig var að ég bjó í Keflavík og fór með forledrum mínum og bróðir til Reykjavíkur. Á meðan foreldrar mínir voru að snúast þá fórum við bræðurnir í Laugardalslaugina, enda var það mikið sport. Fljótlega eftir að við komum ofan í þá var lauginni lokað þannig að enginn fékk að fara í sund og laugarbakkarnir fylltust af blaðamönnum og lögreglumönnum. Þetta var eiginlega tvöfalt sport hjá mér þessi laugarferð.

Mummi Guð, 14.11.2007 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband