Færsluflokkur: Bloggar

Ég datt í lukkupottinn.

Fyrir rúmu ári datt ég heldur betur í lukkupottinn þegar ég vann tæpa milljón Evra í Evrópulottóinu. Mér fannst það reyndar dálítið skrýtið þar sem ég hafði aldrei keypt miða í því! Ég hafði enga trú á þessu en ákvað samt að leika mér aðeins og eyða tíma svikarhrappanna. Ég sendi fax til þeirra með upplýsingum um mig og allt gekk ljómandi vel, ég fékk afrit af vinningsmiðanum og núna var ekkert að gera nema að fá vinninginn. Þeir vildu fá reikningsnúmer þar sem hægt var að leggja peninga inn og ég stofnaði reikning gaf hann upp og áfram hélt vinnan áfram hjá þeim þeir hringdu í mig nánast daglega og ég skildi ekki hversu þolinmóðir þeir voru og af hverju þeir væru ekki byrjaðir að reyna að ná einhverju af mér.

Um 3 vikum eftir að ég fékk bréfið frá þeim þá sögðu þeir að allt væri til reiðu og ég gæti fengið peningana greidda út. En lögmannsstofan sem sér um að greiða vinninga til þeirra sem búa utan Spánar tekur rúmlega 3.000 Evrur í þóknun og ég þarf að borgar þá upphæð til að fá vinningsupphæðina. Ég fæ að vita bankanúmer og helstu upplýsingar hvar ég eigi að leggja peningana inn. Daginn eftir er haft samband við mig ég spurður af hverju ég hafi ekki lagt upphæðina inn og ég segist ekki geta gert neitt núna þar sem ég er í vinnu og bið hann að hringja seinna (ég notaði þetta mjög oft). Hann hringir daginn eftir og segir að ég sé að falla á tíma og það verður að ganga frá þessu. Þá spyr ég hann af hvernig stendur á því að ég hafi unnið í lottóinu þar sem ég hef aldrei keypt miða í því og auðvitað var hann með svör á reiðum höndum. Það gerist oft að umboðsaðilar kaupa marga miða og til að villa um fyrir lottófyrirtækjunum þá skrifa þeir oft nöfn af handahófi sem kaupendur og stunda verða mistök hjá þeim þannig að peningarnir lenda hjá lögmannsstofunni og þá er reynt að hafa upp á réttum eigendum og í þessu tilfelli hafði einhver skráð mig fyrir vinningsmiðanum.

Ég legg til að hann leysi út vinningsmiðann fyrir mig og myndi fá fyrir vikið 50% af þessari milljón Evra. Hann segist ekki mega það. Ég tilkynni honum þá að ég muni ekki borga þessa upphæð og ég heyri vonbrigðin í gegnum símann og jafnframt segist ég vera með margar upplýsingar um hann eins og símanúmer, tölvupóst og heimilisfang í Madrid og ég sé að hugleiða að kæra hann fyrir að reyna svíkja peninga úr fólki. Við svo búið skellti hann á mig og ég hef ekki heyrt í honum aftur.

Ég skil vel að hann nái stundum að plata peninga úr fólki þar sem hann var mjög trúlegur og hafði alltaf svör á reiðum höndum. 3.000 Evrur eru ekki heldur stór upphæð miðað við að geta unnið eina milljón Evra. Hann náði ekki að svíkja peninga út úr mér og það sem ég er ánægðastur með er það að ég eyddi miklum tíma hjá honum og lét hann snúast töluvert í kringum mig.


Lindeman bin 50 Shiraz.

Lindeman bin 50 Shiraz er ástralskt rauðvín meðalfyllt, þurrt og og milt. Það hentar vel með öllu kjöti og sérstaklega vel eitt og sér.

Tegund: Lindeman bin 50 Shiraz.

Framleiðsluland: Ástralía.

Verð í vínbúðum: 1.350 krónur.

Einkunn: 3 (mjög gott)


Sem betur fer.

Ég var farinn að hafa verulegar áhyggjur af heilsu hennar og fagna því að hún hafi verið látin laus úr fangelsi. Þetta er mjög gott fyrir réttarkerfið og skapar gott fordæmi fyrir hina ríku.


mbl.is Látin laus samkvæmt læknisráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt.

Mér finnst ótrúlegt að fólk skuli ekki hugsa betur um öryggisbúnað barna. Hvað er þetta fólk að hugsa, finnst þeim allt í lagi að leggja börn sín í svona hættu eða er það ekkert að hugsa um afleiðingarnar ef slys verður.


mbl.is Börn í lífshættu vegna skorts á öryggi í bifreiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atlantsolía.

Mikið er ég ánægður með að Atlantsolía sé á olíumarkaðinum, ef stóru olíufélögin þrjú væru enn allsráðandi þá væri lítraverðið örugglega 130-140 krónur. Það er stórmerkilegt að Atlantsolía sem er minnsta félagið haldi bensínverðinu niðri.


mbl.is Skeljungur og N1 hækka verð á eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott ráð.

Ég vona að umræddur ökumaður lesi þetta blogg, ég ætla nefnilega að gefa honum ráð sem ég hef notað með góðum árangri í mörg ár. Ef þú mætir alltaf of seint í vinnuna þá skaltu leggja fyrr af stað. Og ef þetta hefur verið einstakt atvik þá er sniðugt að hringja í yfirmanninn og segja honum að þú mætir aðeins of seint og keyra síðan í rólegheitum í vinnuna.

Í von um að þú farir eftir þessu næst.


mbl.is Hraðakstur vegna vinnunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfileg frétt.

Sorgleg frétt og fær mig til að hugsa til Starfsfólksins á Children's hospital of Pittsburgh sem framkvæmdi lifrarígræðsluna á Hugin. Allt frábært starfsfólk þar og ég efast ekki um að þeir sem fórust hafi líka verið frábært fólk. Svona skurstofuteymi eru mjög mikilvæg er þetta gríðarlegt áfall fyrir spítalann.

Ég hugsa líka til sjúklingsins, hann var búinn að bíða lengi eftir nýju líffæri og þegar kallið kemur með von fyrir hann og fjölskyldu hans þá gerist þetta.


mbl.is Teymi skurðlækna fórst í flugslysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég skil ekki...

Ég get ekki skilið af hverju það þarf að kalla þetta svæfing í vísindaskyni. Mér finnst eiginlega verið að misnota orðið "vísindaskyn". Ég hef séð hvernig mávarnir eru og finnst ástandið á tjörninni skelfilegt, það þarf að fækka þessum fljúgandi rottum og eru allar tilraunir tl þess að fækka þeim af hinu góða.


mbl.is Svefnlyfjum beitt á sílamáv í vísindaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram svo.

Flott mál að taka einokunarfyrirtækin í gegn. Ég legg til að næst verða tryggingafyrirtækin tekin fyrir!


mbl.is Húsleit í húsakynnum MS, Auðhumlu og Osta- og smjörsölunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stupid criminal.

Þetta er það sem Jay Leno myndi kalla stupid criminal. Það eru svona náungar sem gera "dagbók lögreglunnar" að gamanlestri.


mbl.is Seinheppinn brotamaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband