Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Eru brauðstangir ekki matur?

Á föstudögum tíðgast á mínu heimili að fá ruslmat á föstudagskvöldum og oft verður Dominos fyrir valinu og varð Dominos fyrir valinu í kvöld. Við pöntuðum tvennutilboð eins og svo oft áður, en þá pantar maður pizzu og brauðstangir og færð aðra pizzu fría. Mjög hentugt fyrir stóra fjölskyldu. Við fáum að vita hvenær pizzan verði klár og skömmu síðar fæ ég sms sem segir að pizzan sé komin í ofninn og við getum sótt hana á ákveðnum tíma og allt í lagi með það.

Ég mætti fljótlega eftir það á Dominos og pizzan var klár en ekki brauðstangirnar. Halló ég pantaði pizzu og brauðstangir og pöntunin átti að vera tilbúin. Mér er sagt að bíða og ég geri það eins og prúðum pilti sæmi. Skömmu seinna kemur maður og liggur honum mikið á og hann fær sömu sögu og ég pizzan er tilbúin en ekki brauðstangirnar. Hann brýnir röddina og segir að hann sé tímabundin og maturinn á að vera til. Þá segir afgreiðslustúlkan viltu þá ekki sleppa brauðstöngunum! Ég sá hökuna á manninum detta í gólfið "nei ég er búinn að borga fyrir brauðstangirnar!" svaraði hann og þá segir afgreiðslustúlkan. "Okkur finnst svo leiðinlegt þegar brauðstangirnar klárast!" Maðurinn horfði á stúlkuna og ég sá að hann hugsaði er hún svona vitlaus eða...!

Ég þurfti að bíða í 15 mínútur eftir brauðstöngunum og þá var komin löng röð viðskiptavina sem átti pizzu en þurfti að bíða eftir brauðstöngunum. Ég fékk brauðstangirnar loksins 30 mínútum eftir að maturinn átti að vera klár og ég kom heim skömmu seinna með kalda pizzu og heitar brauðstangir.

Mér þótti fyndin svörin hjá afgreiðslustúlkunni þegar hún var að svara tímabundna manninum, vegna þess að þessi vinnubrögð er frekar regla en undantekning hjá Dominos í Keflavík. Ég get ekki skilið af hverju brauðstangirnar eru aldrei til þegar ég sæki matinn, ég pantaði pizzu og brauðstangir og það er eins og þeir hjá Dominos halda að það sé aðalatriðið að pizzan sé klár, en viðskiptavinurinn getur alveg beðið eftir brauðstöngunum!


Ein spurning sem ég vil fá svar við.

Eftir lestur þessara fréttar, þá er ein spurning sem ég hefði áhuga á að fá svar við.

Gísli Hrafn, ætlar þú að hætta að nauðga um jólin?


mbl.is Ekki um jólakort að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn?

Ég ætla að koma með smá spurningaleik, kannski ekki að hætti Kalla Tomm þar sem ég ætla að gefa smá vísbendingu. Spurt er um mann og er mynd af honum hér fyrir neðan. Ég vil athuga hvort einhver viti hver maðurinn er og vísbendingin sem þið fáið er að hann átti afmæli í gær og hélt upp á 49 ára afmælið sitt.

Ég hvet ykkur til að klikka á myndina og stækka hana, þá getið þið kannski frekar þekkt manninn.

Limahl

Hver er maðurinn?


Afmælisbarn dagsins: -Christopher Hamill.

Í dag á afmæli Christopher Hamill, hann fæddist í Wigan í Englandi 19. desember 1958. Hann reyndi fyrir sér í tónlistinnin bæði í samstarfi með öðrum tónlistarmönnum og í hljómsveitum. Hann var meðal annars í pönkhljómsveitinni Vox Deus og í hljómsveitinni Crosswords. En hann sló fyrst í gegn með laginu "Too Shy" þegar hann var í hljómsveitinni Kajagoogoo. Christopher eða Limahl eins og hann kallaði sig naut mikillar vinsældar á "eighties" tímabilinu og varð hárgreiðsla Limahls nokkurskonar merki tímabilsins. Limahl var ekki lengi í Kajagoogoo og haustið 1983 var hann rekinn úr hljómsveitinni, við brottreksturinn dó frægðarsól Kajagoogoo, en Limahl hóf sólóferil sem varð hvorki langur né merkilegur. En hann náði þó að gera tvö lög sem urðu gríðarvinsæl. Það voru lögin "Only For Love" og "Neverending Story" úr samnefndri mynd. Það lag er án efa vinsælasta lag Limahls frá upphafi og eitt af minnistæðustu lögum "eighties" tímabilsins.

 


Tyrkland að búa sig undir þjóðarmorð.

tyrklandÞetta er enn eitt skrefið hjá Tyrkjum að hefja þjóðarmorð gegn Kúrdum. Þetta er búið að liggja lengi í loftinu, Tyrkirnir hafa smá saman verið að búa sig undir að hefja þjóðarmorðið og í nótt tóku þeir enn eitt skrefið. Mér finnst að Sameinuðu Þjóðirnar og vestræn lýðræðisríki eiga að taka sig saman í aðgerðum gegn Tyrklandi áður en þeir ná fremja frekari glæpi gegn Kúrdísku þjóðinni.

Það segir ýmislegt um Tyrkland að þeir fela sig á bak við PKK-samtökin og segjast vera að verja Tyrkland gegn þeim samtökum og þess vegna ráðast þeir á Kúrda. En Tyrkir vilja ekki að fólk viti að PKK séu ung samtök sem voru stofnuð vegna stöðugra árásar frá tyrkneska og íraska hernum á Kúrda. PKK hafa því miður farið niður á sama plan og Tyrkir og beita ofbeldi gegn saklausu fólki og fyrir það réttlæta Tyrkir árásirnar á Kúrda.


mbl.is Tyrkir gerðu loftárásir á Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisbarn dagsins: -Göran Bror Benny Anderson.

benny andersonÍ dag á afmæli Göran Bror Benny Anderson, hann fæddist 16 desember 1946 í Stokkhólmi í Svíþjóð og er því 61 árs í dag. Benny hætti í skóla 15 ára og eignaðist sitt fyrsta barn 16 ára gamall og sitt annað barn 18 ára með fyrstu kærustunni sinni, Christina Grönvall. Benny og Christina voru saman í hljómsveitinni Elverkets Spelmanslag, sem var sænsk þjóðlagahljómsveit. Næsta hljómsveit sem Benny var í var The Hep Stars og naut hún mikillar vinsældar í Svíþjóð.

Í júní 1966 hitti Benny Björn Ulvaeus og fóru þeir að semja lög saman, auk þess þá var Benny í samstarfi með Lasse Berghagen og sömdu þeir lag saman sem hafnaði í öðru sæti í sænsku forkeppninni fyrir Eurovision 1966. Í þeirri keppni kynntist Benny Anni-Frid Lyngstad og urðu fljótlega par, á sama tíma kynntist Björn ungri söngkonu, Agneta Faltskog og stofnuðu þau fjögur hljómsveitina ABBA.

abbaABBA sló eftirminnilega í gegn þann 6. apríl 1974, þegar hljómsveitin flutti lagið Waterloo í Eurovision keppninni og vann hana. Eftir það lá leiðin hratt upp á við og fylgdu margir smellir í kjölfarið. ABBA lagði upp laupanna 1982 og reyndi Benny fyrir sér eftir það á sólóbrautinni án þess að ná einhverjum vinsældum. Benny samdi líka söngleiki ýmist einn eða með öðrum með misjöfnum árangri. Honum tókst einna best upp með söngleikinn Chess sem hann samdi ásamt Tim Rice.

 

 


Skeljungur býður 12 króna afslátt af eldsneytisverði.

shellSkeljungur hefur ákveðið að bjóða félögum í Ferðaklúbbnum 4x4 12 króna afslátt af eldsneytisverði frá 1. janúar 2008. Ef þú ert félagi í ferðaklúbbnum 4x4 og ert með "Shell Vildarvinur 4x4 félagsskírteini" þá færðu 12 krónu afslátt af eldsneytinu. Auk 12 krónu afsláttarins þá býður Skeljungur fjöldan allan af öðrum afsláttum til korthafanna og auk þess verða auglýst sérstaklega önnur tilboð og afslættir til korthafanna. Hægt er að sækja um kortið á síðu ferðaklúbbsins.

Mér finnst Skeljungur vera senda kaldar kveðjur til þeirra viðskiptavina sinna sem keyra um á fólksbílum og hafa ekki kost á að ganga í ferðaklúbbinn. 12 króna afsláttur er gríðarmikill afsláttur og mér finnst ósanngjarnt af Skeljungi að velta kostnaðinum á óbreytta eldsneytiskaupendur sem þekkja ekki afsláttafrumskóginn. Kannski er þetta afsláttur sem olíufélögin eru að gefa valinkunnum viðskiptavinum, en við sem kunnum ekki á afsláttarkjörin þurfum að borga fullt verð og greiða niður eldsneytisverðið til jeppakarlanna.


Frábær leikur hjá Englendingum.

fabio capelloÞað lítur út fyrir að Enska knattspyrnusambandið sé að ráða fremsta knattspyrnuþjálfara í heimi til að stjórna enska landsliðinu. Capello á frábæran þjálfaraferil að baki með Milan, Juventus, Roma og Real Madrid og hefur gert öll þau lið sem hann hefur þjálfað að meisturum. Hann varð Ítalíumeistari sem þjálfari 1992, 1993, 1995, 1996 og 2001. Hann varð ítalskur bikarmeistari 1992, 1993, 1994 og 2001. Hann varð Spánarmeistari 1997 og 2007. Hann vann meistaradeildina 1994 með Milan þegar þeir unnu Barcelona í einum besta knattspyrnuleik sögunnar. Milan varð síðar það ár meistari meistaranna í Evrópu.

Capello á líka frábæran knattspyrnuferil að baki en hann spilaði á ferli sínum með SPAL, Roma, Juventus og Milan. Sem leikmaður varð hann Ítalíumeistari 1972, 1973, 1975 og 1979 og varð ítalskur bikarmeistari 1969 og 1977. Þá lék Capello 32 landsleiki fyrir Ítalíu.

Það eru margir sem segja að Englendingar eigi að ráða enskan þjálfara. Það eru rök sem ég skil að úr því að leikmennirnir þurfi vera að Englendingar, af hverju þarf þjálfarinn ekki að vera það? En ef Englendingar vilja ná árangri þá er viturlegast að ráða erlendan þjálfara. Það hefur sýnt sig að enskir þjálfarar hafa ekki náð góðum árangri hvorki með landslið né félagslið á undanförnum áratugum. Núna eru komin 15 ár síðan enskur þjálfari vann enska meistaratitillinn, en það gerðist síðast 1992 þegar Howard Wilkinson gerði Leeds að enskum meisturum. Sven Göran Erikson er sá þjálfari sem hefur náð bestum árangri með enska landsliðið í langan tíma og hann er líka fyrsti og eini landsliðsþjálfari Englands sem ekki er enskur, þangað til núna.

Englendingar er góð knattspyrnuþjóð með marga frábæra leikmenn, helsti galli Englendinga er að þeir halda að þeir séu bestir í fótbolta, en það er ekki rétt. Þess vegna held ég að það sé sterkur leikur að ráða útlending og ekki er verra að það sé Fabio Capello. Capello er nefnilega rétti maðurinn til að koma Englendingum í skilning um að ef þeir vilja vera bestir þá þurfa þeir að vinna fyrir því.


mbl.is Ráðning Capellos staðfest með fyrirvara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smásagnasamkeppni.

Ég var að fá fréttabréf Málbjargar, en fyrir þá sem ekki vita þá er Málbjörg samtök fólks sem stama. Í fréttabréfinu er meðal annars kynnt smásagnasamkeppni sem Málbjörg er að efna til. Öllum er heimil þátttaka, en sögurnar verða að vera á íslensku og fjalla um stam á einn eða annan hátt. Dómnefnd er skipuð fólki sem stamar og sérfræðingum í ritsmíðum og velur hún bestu og sthyglisverðustu sögurnar. Nánari upplýsingar um smásagnasamkeppnina er að finna á heimasíðu Málbjargar.

Mér finnst þetta bráðsniðug hugmynd hjá Málbjörgu. Ég þekki vel til þessa máls þar sem einn sonur minn stamar, en því miður þá er lítið efni til um stam, hvort sem það er fræðsluefni eða sögur. Í flestum þeim sögum sem ég hef lesið þar sem sögupersóna stamar, þá er sá sem stamar oftast klikkaður eða minnipokamaðurinn í sögunni. En í rauninni er það ekki svo, þar sem flestir sem stama sem ég þekki eru bráðgáfað og skemmtilegt fólk. En þið sem lesið þetta og þykist vera með smá rithöfund í ykkur, endilega skrifið eina stutta og góða sögu og sendið hana inn.


Þungur dómur.

Ég er nokkuð viss um að margir öfgafeministar finnist þetta þungur dómur, þar sem það virðist vera sannfæring þeirra að karlar nauðga, en konur nauðga ekk. Ef karlmaður myndi gera þetta við tólf ára stúlku sem þessi kona gerði þá yrði allt brjálað, en það er í lagi að kona geri þetta. Það sýnir bara að konan sé heilbrigð og klár að ná sér í unga hjásvæfu og ekki er verra að hún gerði það fyrir framan karlinn.

Núna var í fréttum fyrir örfáum vikum að vestrænar konur flykkjast til Kenía í kynlífsferðir. Þær leigja sér  unga menn og oft leigja þær sér nokkra menn og láta þá þjóna sér á meðan dvöl þeirra stendur. Fréttin var á léttum nótum og var talað við kynlífsþrælana og voru þeir hæstánægðir með þetta líferni sitt. Fá borgað og í staðinn þurfa þeir að sofa hjá konunum. Ef þessi frétt væri með öfugum formerkjum, karlar að kaupa sér svona þjónustu í vanþróuðu landi þá væri allt brjálað og karlarnir sakaðir um mannsal og þrælahald, en ekki í þessari frétt konur mega fara í kynlífsferðir.


mbl.is 29 ára kona eignaðist barn með 14 ára pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband