Hefur þetta eitthvað með vatnið að gera?
17.3.2008 | 18:55
Ætli það sé eitthvað í vatninu á Skagaströnd sem gerir fólk ofbeldisfyllra eða líklegra til að fremja afbrot en þá sem búa annarsstaðar. Í þessa litla þorpi þar sem íbúarnir eru eitthvað um 600 talsins hafa reglulega verið að berast fréttir af allskonar afbrotum. Um helgina var brotist inn í apótekið á Skagaströnd og stolið mikið af lyfjum, ekki er langt síðan brotist var í sama apótek og þá stóð starfsmaður apóteksins þjófinn að verki og var hann laminn með kúbeinið í höfuðið fyrir vikið. Ekki er langt síðan fréttir bárust af því að óprúttnir aðilar gerðu það að leik að sprengja ítrekað við hús lögreglumanns á staðnum og skemma eignir hans og svona mætti telja áfram.
Hallbjörn söng hér á árum áður um Kántríbæ, núna er spurning hvort hann þurfi ekki að semja nýjan texta um þorpið, sem er ekki eins saklaust og það var áður.
Lögregla veitti ökumanni eftirför á Skagaströnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég verð að svara þessari vangaveltu neitandi.. Vatnið sem ég drekk er fínt og ég er ekkert sérlega ofbeldishneigð ;) Það þarf því miður ekki marga einstaklinga til að valda miklum usla .... eins og við þekkjum sem búum í litlum bæjarfélögum...
..... og ekki myndi ég segja að það að brjótast inn hafi eitthvað með ofbeldi að gera ........ :)
Hugrún Sif (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 19:16
Það var ein af þöglu aðgerðum ríkisstjórnarinnar að gera Skagaströnd að svoddan fangelsi. Þess vegna var nú Hugrún send þangað frá Blönduósi :)
Kiddi Blö, 17.3.2008 kl. 20:08
Bara fyndinn í kvöld Kiddi :)
Hugrún Sif (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 21:02
Passaðu þig að fara ekki að standa fyrir stríði á milli þessara Vinabæja
Mummi minn , mér sýnist hætta á ferðum. Kveðja frá tengdó
Ingibjörg (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 21:55
Hafði reyndar ekkert með Skagstrendinga að gera í þetta sinn annað en að ökumaðurinn var á leið til Skagastrandar. Fréttir herma að um Blöndósing hafi verið að ræða.
Skaggi (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 22:41
Hahaha .. dáldið langsótt að ætla að standa fyrir stríði á milli okkar Kidda þar sem við erum bæði Blönduósingar ;) En manni má nú samt þykja vænt um bæinn sem maður býr í og hafa skoðun á svona undarlegri vangaveltu sem ég þykist nú svo sem vita að var meiri grín en alvara ...
En einmitt dáldið fúlt að fréttaflutningur sé á þessa leið ef ekki var einu sinni um Skagstrending að ræða (sem ég hef reynar ekki hugmynd um)!!!
Hugrún Sif (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.