Leyfð og bönnuð einkanúmer.

Það er vinsælt að fá sér einkanúmer á bíla, það vita kannski ekki margir að nokkur einkanúmer hafa verið bönnuð og eru nokkrar ástæður gefnar fyrir því að númerin hafa verið bönnuð en þær eru, "Getur valdið óþægindum og sársauka", Fallið til að valda hneykslun og getur haft óþægindi í för með sér", "Getur valdið ruglingi". Númerin sem hafa verið bönnuð eru 15 talsins og eru POLICE, KILLER, ÖKUNÁM, BAKKUS, FUCKU2, KILLR, FÍKNÓ, FATAL, STUNTS, STUNT, DEVIL, Ó GUÐ, SATAN, NAZI OG KLÁM. Á sama tíma eru leyfð númer eins og IH8MYX, IH8 50, BAD BOY, BYSSUR, 2 BAD, 26Y4U, 2DIE4, 2HOT4U, SEX, SÆKÓ, SHOGUN, 666, 6 TOY, EAT ME, RAFTUR, RACER, HR1SV1 og URNEXT.

Ég skil ekki hvernig einhver getur bannað sum númer en leyft önnur, Af hverju er KILLER bannað en URNEXT leyft, af hverju er RACER leyft en STUNT bannað og af hverju er FATAL bannað getur einhver sagt mér það? Síðan er það NAZI, ég þekki mann sem heitir Jónas og er kallaður Nazi. Hann var ekkert sáttur við nafnið fyrst og byrjaði að skrifa það með z-u og síðan þá hefur nafn hans alltaf verið skrifað Nazi og hann getur ekki fengið einkanúmer með sínu nafni þar sem að það getur valdið óþægindum og sársauka hjá einhverjum. Sama er með bróðir minn hann Óla. Hann hefur alltaf skammstafað nafn sitt sem Ó Guð, eins og ég geri Mummi Guð. Hann getur ekki fengið einkanúmer með sínu nafni. Af hverju í andskotanum (fyrirgefið blótið) er ÖKUNÁM bannað?

Hverjir eru það sem banna sum einkanúmer og leyfa önnur? Eru einhverjar reglur sem þau fara eftir eða er það bara geðþótta ákvörðun þeirra sem ráða hvaða nöfn eru leyfð.  

Að lokum verð ég að koma því á framfæri að mér finnst skandall að "félagi" minn Árni Johnsen skuli hafa einkanúmerið ÍSLAND. Það hljóta flestir vera sammála mér í því að landráðamaður sem hefur hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að stela íslenska fánanum hafi númerið ÍSLAND.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Janus

Hahahaha....þetta er helvíti góður pistill :) Mig langaði alltaf að fá mér einkanúmerið Mæjónes, sem myndi þýða My own ass, en svo komst af ég af því að það er einum staf of mikið

Janus, 8.8.2007 kl. 23:48

2 Smámynd: Fjóla Æ.

Slepptu bara j-inu og  skiptu e-inu út fyrir a og þú ert í góðum málum.

Fjóla Æ., 9.8.2007 kl. 00:21

3 Smámynd: Halla Rut

Sá númer einmitt í dag sem var "TÖFF" Ekkert smá"hallærislegt". Við hlógum ekkert smá að þessu. Það flottasta sem ég hef séð var á flottum Porse og sagði "BLESS"

Halla Rut , 9.8.2007 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband