Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Birni Inga líkt við Gomer Pyle.

Vincent D'Onofrio sló fyrst í gegn í myndi Stanleys Kubricks  Full Metal Jacket, þar fór hann með hlutverk Gomers Pyle. Ég er að pæla hvort Birni Inga sé líkt við D'Onofrio eða Gomer Pyle. Eins og flestir vita sem hafa séð þá stórgóðu mynd, þá er Gomer Pyle ekki fyrirmyndar hermaðurinn. Hann getur ekki gert neitt rétt. Hann lagður í einelti af þjálfara sínum og síðan félögum sínum þar sem þeim er refsað fyrir aumingjaskapar hans. Það endar með því að Gomer Pyle skýtur þjálfara sinn síðan sjálfan sig.


mbl.is Ruglað saman við D’Onofrio
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hann örugglega á sama leik og ég?

Ég bara spyr. Mér finnst eins og Eyjólfur sé farinn að ljúga að sér eins og Teitur gerði í allt sumar með KR. Það sáu það allir sem voru á vellinum að liðið var að spila illa, þó einstakir leikmenn hafi staðið sig ágætlega þá spilaði illa saman, þetta var svona eins og 11 manna sólóklúbbur. Að segja að þetta hafi verið ágætt veganesti fyrir næstu verkefni er furðulegt. Næsta verkefni er Spánn í undankeppni EM eftir rúmar 2 vikur, ég hlakka ekki til að sjá þann leik.


mbl.is Eyjólfur:„Mikil samkeppni um að komast í landsliðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland náði jafntefli gegn arfaslöku liði Kanada.

Ísland náði aðeins jafntefli gegn arfaslöku liði Kanada. Leikurinn var frekar leiðinlegur á að horfa og ég veit ekki alveg hvað Eyjólfur er að hugsa í sambandi við þetta lið. Mér finnst eins og hann viti ekki hvað hann vill gera og hvernig hann ætlar að nýta sér þennan æfingaleik til að ná í stig í undankeppni EM.

Í dag var birtur styrkleikalisti FIFA og enn einu sinni falla Íslendingar á listanum og eru núna komnir í 117 sæti og deila því sæti með ekki ómerkilegra landi en Súdan. Næstu lönd fyrir ofan Ísland eru síðan Malta, Kazakstan, Namibía, Burundi, Sýrland og Malawi. Þetta eru allt lönd sem við viljum ekki bera okkur við hvorki í íþróttum né öðrum hlutum. Þeir félagar Eyjólfur og Geir eru búnir að vera duglegir í dag að gera lítið úr þessum lista. Eyjólfur sagði til dæmis í fréttum í dag að sumir kölluðu listann Coca-Cola-listann svo lítið álit hafa menn á honum. Ég get sagt Eyjólfi að listinn heitir á ensku, FIFA/Coca-Cola World Ranking. Coca-Cola er einn stærsti styrktaraðili FIFA og fá meðal annars nafn sitt á þennan lista. Listinn er ekki kallaður Coca-Cola listinn vegna þess hversu ómarktækur hann er, heldur vegna þess að Coke kostar hann.

Geir Þorsteins er búinn að vera lítið skárri, segir að listinn sé ekki marktækur vegna þess að við erum í Evrópu og erum að spila við miklu sterkari lið en önnur lið á listanum. Þessi ummæli eru furðuleg að það er varla hægt að svara þeim.

Niðurstaðan, Ísland náði jafntefli gegn slöku liði í slökum leik og Eyjólfur er sáttur við leikinn.


mbl.is Ísland og Kanada gerðu jafntefli, 1:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki fleiri völundarhús.

Við fórum með Hugin á Borgarspítalann í dag þar sem hann mætti í skoðun hjá bæklunarlækni og gekk allt vel. Það sem ég hafði mestar áhyggjur af var að rata ekki á stofuna hjá lækninum í tæka tíð enda er ekki auðvelt að rata í þessum völundarhúsum sem spítalarnir eru. Ég hef aldrei skilið af hverju er þess þörf á Íslandi að byggja spítalana lárétt, en ekki lóðrétt. Núna stendur til að fara að byggja Hátæknisjúkrahús (ef það sé til hátæknisjúkrahús þá hlýtur að vera til lágtæknisjúkrahús, er það ekki?) og er notað tækifærið til að byggja hagkvæmt sjúkrahús, nei það er lögð áhersla á að byggja flott sjúkrahús og lítið hugsað um notagildið. Ég hefði vilja að það yrði byggt stórt sjúkrahús að gólffleti og síðan væri bara byggt upp í loftið. Ég var með Hugin á sjúkrahúsi í Pittsburgh í 6 mánuði, sjúkrahúsið var ekki flott að sjá en það var mjög einfalt. Það var mjög einfalt að rata og alltaf stutt að fara á næstu deild. Þegar það þurfti að flytja Hugin á milli deilda þá tók það í mesta lagi 5 mínútur og ekkert stress. Þegar Hugin hefur verið fluttur á gjörgæslu hérna þá tekur það alveg 15 mínútur og það getur munað um slíkt á ögurstundu.

Ég skil ekki af hverju var farið í einhverja teiknisamkeppni til að fá sem flottasta sjúkrahúsið, það hefði verið miklu einfaldara og viturlegra að fá einhvern vanan arkitekt að teikna sjúkrahús sem myndi nýtast sem best, bæði fyrir starfsfólk og sjúklinga. Í stað þess að byggja lágreist hús með mörgum löngum göngum. Til að tryggja að sjúkrahúsið verði sem flottast þá var Alfreð Þorsteinsson ráðinn sem framkvæmdastjóri framkvæmdarnefndar um byggingu nýs háskólasjúkrahúss. Flottari titill en hafði þegar hann hafði eftirlit með byggingu Orkuveituhússins sem fór bara 3 milljarða fram ú áætlun, eða sem svarar um 6 Grímseyjarferjum. Ég skil ekki af hverju Árni Johnsen hafi ekki verið ráðinn sem hægri hönd Alfreðs, þeir væru að minnsta kosti flottir saman.


Búið að steypa.

Fyrir alla þá sem fylgjast vel með pallagerðinni hjá Fjólu (og mér) þá get ég sagt það að steypuvinnan er búin. Við steyptum staurana niður í dag og gekk það mjög vel. Þannig að við getum byrjað á morgun að setja klæðninguna á pallinn og ættum því að geta notið sólarinnar um helgina á pallinum og grillað kjöt og grænmeti "a la Fjóla". Við höfum samt verið dugleg að grilla, höfum bara grillað fyrir framan húsið en ekki í garðinum, kjötið er jafngott hvar sem maður grillar. En það er bara ekki rétta grillstemningin. Það hefur dregist aðeins að klára pallinn, núna eru liðnir 3 mánuðir síðan við byrjuðum að moka upp garðinn og loks sér fyrir að við klárum pallinn, en bara þann hluta þar sem potturinn er ekki.

Huginn1Það verður sennilega lítið gert á morgun í pallinum þar sem við erum að fara með Hugin til bæklunarlæknis á morgun, við erum lengi búin að bíða eftir að komast til hans og loksins verður það á morgun. Huginn er annars búinn að vera í hörkuformi að undanförnu og er alltaf að koma læknunum á óvart. Í janúar var haldinn fundur með okkur og lækni og deildarstjóra á Barnaspítalanum, þetta var svartur fundur og í dag hefur Hugin sýnt að læknarnir höfðu ekki haft rétt fyrir sig að þessu sinni, sem betur fer. Heldur hefur Huginn sýnt stöðugar framfarir undanfarna mánuði, þó við hefðum viljað að framfarirnar væru meiri þá eru framfarir alltaf framfarir.


Hann er löggiltur hálfviti.

Ég hef verið frekar latur að blogga að undanförnu, að minnsta kosti ef ég miða við suma aðra daga. Það hefur reyndar verið nóg að gera. Ég byrjaði að vinna aftur á mánudaginn eftir tveggja vikna sumarfrí. Ég hefði sennilega þurft á lengra fríi á að halda til að safna smá orku, en það verður bara tekið seinna. Pallagerðin gengur ágætlega hjá okkur, en ég er farinn að huga að plani-B. Plan-A var að komast í heita pottinn á Ljósanótt, ég sagði alltaf að ef potturinn væri ekki til þá myndi ég redda fiskikari og fylla það af heitu vatni. Núna er ég kominn með smá áhyggjur af því að við náum ekki að gera heita pottinn kláran í tæka tíð og fiskikarið verði lausnin.

Núna var menningarnótt í Reykjavík um helgina og þrátt fyrir mikla og góða dagskrá þá tók ég ekkert þátt í henni. Ég eyddi helginni heima með Fjólunni og Hugin og átti góða helgi í róleg heitunum. Ég horfði á Kaupþings tónleikana í Ríkissjónvarpinu og fannst þeir ágætir. Það var samt nokkrir hlutir sem vöktu athygli mína. Þar ber hæst Bubbi Morthens. Mér finnst Bubbi vera frábær tónlistarmaður, en stundum finnst mér að hann ætti að syngja meira og tala minna. Ég veit hvar ég á að byrja í gagnrýni minni á honum. Bubbi fór mikinn í gagnrýni sinni á ríkisforstjórum og stjórnmálamönnum og tók dæmi með Grímseyjarferjuna og sagði ef gjaldkeri í banka myndi stela pening þá yrði hann rekinn, af hverju eru stjórnmálamenn sem klúðruðu Grímseyjarferjunni ekki reknir! Ég gæti snúið spurningunni við, ef gjaldkeri myndi stela pening myndi bankastjórinn verða rekinn? ég held ekki.

Mér finnst Bubbi ekki hafa efni á að gagnrýna ríkisforstjórana og auðvaldið. Hann gat það þegar hann söng, "Ég er löggiltur öryrki, hlusta á HLH og Brimkló. Ég er löggiltur hálfviti, læt hafa mig að fífli, styð markaðinn". En núna er hann einn af þeim sem lætur hafa sig af fífli og styður markaðinn. Núna ekur Bubbi um á tugmilljóna lánsbíl frá B&L, en hann leikur í auglýsingum í staðinn, ég væri alveg til í svona díl! Útvarpsauglýsingarnar eru svo lélegar að ég hef grun um að Bubbi semji þær sjálfur og það segir mér það að hann eigi bara að semja tónlist. Bubbi seldi síðan öðrum "arðræningjum" höfundrétt sinn á eigin verkum. Sjóvá keypti réttinn og borgaði að því að heimildir segja um 50 milljónir fyrir. Á sama tíma stóð ég í málshöfðun við Sjóvá og ég get sagt það að þeir pössuðu peningana sína betur gagnvart mér heldur en Bubba. Það sem endilega fór með mig það var þegar Bubbi fór að tala um að þetta væri í fyrsta sinn sem að tónleikar eru haldnir á íþróttaleikvangi á Íslandi. Voðalega er minnið hans Bubba orðið lélegt, ég man að minnsta kosti vel eftir Elton John tónleikunum sem haldnir voru á þessum sama velli fyrir örfáum árum síðan. Ég man líka eftir stórum tónleikum á Kaplakrikavelli fyrir nokkrum árum og þar spilaði Bubbi ásamt GCD. Svona fer minnið illa með suma menn. Ráð til þín Bubbi, tala minna og syngja meira.

Gærdagurinn fór í að reisa girðingastaurana og eru núna allt tilbúið til að steypa. Jósteinn mágur kíkti til okkar hjálpaði okkur við að reisa þá og rétta. Síðan fengum við pottinn til okkar, hann er töluvert stærri en við áttum von á. Þetta er líkara sundlaug en heitum potti, alla vega þar sem ég horfi á hann út í garði núna. Í gærkvöldi eyddum við síðan kvöldinu í að glápa á sjónvarpið. Við horfðum á sennilega eina verstu bíómynd sem ég hef séð, "Dumb and Dumberer: When Harry Met Larry". Ég veit ekki af hverju ég horfði á alla myndina en hún var virkilega léleg, eina jákvæða sem ég sá við myndina var tónlistin en í myndinni voru nokkur gömul og góð lög eins og til dæmis "Whip It" með Devo, lag sem heyrist alltof sjaldan. Það segir ýmislega um myndina að hún var tilnefnd til þriggja hindberjaverðlauna. Eftir þessari hörmungarmynd kom ein besta mynd sem ég hef séð, Das Boot. Þegar ég vissi að hún væri sýnd þá vonaði ég að hún væri sýnd með þýsku tali en ekki því enska eins og hún var á videoleigum. Sem betur fer var þessi útgáfa með þýska talinu og myndi stórgóð.


Þá er það komið í ljós.

Þá er það komið í ljós hvaða lið er stóra liðið í Manchesterborg.


mbl.is Manchester City efst eftir sigur á Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn vikunnar: -Vilhjálmur Vilhjálmsson og Bolur Bolsson aka Henry Birgir.

Að þessu sinni hljóta tveir menn titillinn menn vikunnar, enda er varla hægt að gera upp á milli þeirra. Það er annars vegar sósíalistinn Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri og hins vegar Bolur Bolsson eða Henry Birgir fréttamaður á Fréttablaðinu.

Vilhjálmur fær heiðurinn fyrir að koma með enn eina óskiljanlega yfirlýsingu. Núna snýst hún um Vínbúðina í Austurstræti. Vilhjálmur finnst ÁTVR veita alltof góða þjónustu og hann vill loka Vínbúðinni í Austurstræti svo fólk í miðbænum geti ekki keypt sér bjór í stykkjatali. Ég held að Vilhjálmur sé búinn að gleyma því að hann er líka borgarstjóri, en ekki bara stjórnarmaður hjá SÁÁ. Ef honum finnst vandamálið vera rónarnir í miðbænum þá þarf að leysa það mál á einhvern annan hátt en að loka ríkinu. Þetta er ekki fyrsta ruglið sem kemur frá Vilhjálmi og dettur mér tvö stór mál strax í hug, annars vegar þegar hann bannaði fólki að koma til Reykjavíkur að skemmta sér, sagðist ekki vilja fá svona fólk til borgarinnar. Hann fékk það í gegn að fólkið komst ekki til landsins, ég hefði haldið að hann myndi halda áfram að rannsaka hvern ferðalang sem kæmi til borgarinnar og myndi banna alla þá sem hann grunar um græsku að dveljast í borginni. En hann hefur ekki gert það. Hitt málið sem mér dettur í hug er Háspennu-málið, þar sem Háspenna fékk leyfi til að starfrækja spilasal í Mjóddinni, síðan fékk Vilhjálmur bakþanka og ákvað að banna salinn og það kostaði borgina á annað hundrað milljónir í bætur.

Bolur/Henry fá heiðurinn vegna barnaskapar þeirra á Moggablogginu.  Henry býr til ímyndaðann vin sem hann kallar Bol og bloggar eins og vitlaus maður til að verða vinsæll bloggari. Honum tekst að verða vinsæll eða réttara sagt hann fær margar heimsóknir og þar með telur Henry sig hafa sannað að Moggabloggið sé fáránlegt. Ég veit ekki hvað hann fékk út úr þessu en það skiptir ekki máli, hann er maður vikunnar hjá mér.

villi   bolurbolsson

Menn vikunnar: Vilhjálmur Vilhjálmsson t.v. og Bolur Bolsson t.h.


Af bloggi og barnaklámi.

Að undanförnu hefur verið mikil umræða um bloggið og sérstaklega þessa tengingu sem mbl.is bíður upp á, þar sem hægt er að tengja blogg við fréttir. Mörgum finnst það vera svindl og að fólk sé að tengja bloggið sitt við fréttir, finnst það vera að gera það bara til að fá fleiri inn á síðurnar sínar. Það getur verið meira en rétt að það sé ástæðan hja sumum, en af hverju mega þeir það ekki. Gott dæmi er um Bol Bolsson sem er ímyndaði vinurinn hans  Henrys Birgis, hann bloggaði við hverja fréttina af annarri án þess að segja nokkuð og á nokkrum dögum komst hann í efsta sæti moggabloggsins og Henry Birgir segir síðan á sinni heimasíðu að þetta sýnir hvað moggabloggið sé fáránlegt! Ég skil ekki hvað Henry Birgir er að meina, hvað er fáránlegt við moggabloggið sem honum tókst að sanna? Að það sé hægt að verða vinsælasti bloggarinn án þess að segja mikið. Lífið er bara þannig að það er ekki alltaf sá besti eða klárasti sem vinnur.

Það að segja að þetta sé eitthvað svindl fatta ég ekki. Þetta er kannski ekki hefðbundin aðferð, en mér finnst út í hött að fara í fýlu út í moggabloggið og hætta að blogga eins og einhverjir hafa gert út af þessu. Hvaða einstaklingar eru það sem hætta að blogga út af því að þeim finnst vinsældarlistinn ósanngjarn? Ég held að það séu aðilar sem hafa frá einhverju að segja og þola ekki að einhverjir sem segja lítið og eru ekki þekktir séu vinsælli en þeir.  Það er spurning hvort það eigi að taka upp fyrstu og aðra deild í blogginu. Í fyrstu deild eru þeir sem eru þekktir og blogga mikið um veraldlega hluti. Í annarri deildinni eru almúginn, sem bloggar fréttir og segja bara frá sínu daglega lífi. Ég held að þetta fyrirkomulag myndi kæta marga fyrstu deildar bloggarana sem gætu verið á toppnum á vinsældarlistanum án þess að einhverjir sem eru óþekktir angri þá.

Ég sá tvær eða þrjár færslur hjá Boli Bolssyni og eftir það hafði ég ekki fyrir því að opna fleiri, þannig er það bara. Ég skyldi ekki þetta uppþot í kringum Bol og ef einhverjum finnst hann vera að svindla þá finnst mér það ekki skipta máli. Ég held áfram að blogga og hef áfram gaman af vinsældarlistanum, þó þar sé einum hálfvitanum of mikið. Þessar tölur sem segja til um heimsóknir eru eitt, þær tölur sem ég tek mest eftir og mér finnst segja mikið um hversu vinsælt bloggið er það eru athugasemdirnar. Því fleiri sem skrifar athugasemdir, því vinsælli ertu. Mín skoðun á þessari bloggþrætu er sú að mér finnst þetta engu máli skipta og flestir þeir sem fara stórum orðum um svindl og prettir eru í raun að gera lítið úr sér.

Það hafa verið fréttir af rússneskri barnaklámssíðu þar sem þeir linka inn á nokkrar myndir af barnalandssíðum og allt varð brjálað á Barnalandi. Allir eru núna í kapp við aðra að læsa síðunni sinni svo enginn geti tekið myndir af börnunum og sett þær á klámsíður. Mér var bent á þessa rússnesku síðu og kíkti aðeins á hana, það var reyndar búið að læsa öllum linkum á íslensku síðurnar sem er hið besta mál. En fyrir ykkur sem hafið áhyggjur af því að börn ykkar lendi á erlendum klámsíðum, þá skal ég gefa ykkur ágætt ráð, ekki láta myndir á netið þar sem börnin eru nakin. Þær myndir sem ég sá á þessari síðu eru bara eðlilegar fjölskyldumyndir af börnum í baði eða hlaupandi um í sólinni og allt í lagi með það, en ekki setja svona myndir á netið. Þá fyrst eru þið að bjóða hættunni heim. Síðan er annað mál að það hljóta að vera stórbilaðir menn sem fá eitthvað út úr því að skoða svona myndir af ókunnugum börnum, en það eru margir stórbilaðir menn í heiminum.


Frétt á röngum degi?

Mér finnst þessi frétt svo ótrúverðug eða ótrúleg að mér finnst eins og þessi frétt eigi bara heima á 1. apríl. Síðan er spurning hvort þetta sé fríhafnarverslun eða er búið að borga skatta og skyldur af bókunum?


mbl.is Fljótandi bókamarkaður í Reykjavíkurhöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband