Íþróttamaður ársins 2007. -Mín spá.

Í kvöld verður tilkynnt hver hefur verið valinn íþróttamaður ársins 2007. Eins og svo oft áður þá er mikil spenna um hver verður fyrir valinu, ég ætla að koma með mína spá um hvernig kosningin hefur farið:

1. sæti. Margrét Lára Viðarsdóttir. Hún verður valin af því að svo margir vorkenna henni eftir að hún var ekki valin best á Íslandsmótinu í haust og það uppistand sem varð í kringum það val er ástæða þess að hún fær titillinn í kvöld.

2. sæti. Guðjón Valur Sigurðsson. Það er alltaf handboltamaður á meðal tveggja efstu og ég held að Guðjón Valur sé líklegur til að fá flest atkvæði handboltamannanna.

3. sæti. Birgir Leifur Hafþórsson. Hann endar í þriðja sæti vegna þess að hann hefur verið duglegur að auglýsa sig og sinn "góða" árangur, þó flestar fréttirnar hafa verið um að hann hafi næstum því komist á aðalkeppnina þá tryggir öflugur fréttaflutningur honum 3ja sætið.

4. sæti. Ragna Ingólfsdóttir. Það verður allt brjálað ef bara ein kona verður á topp 5 listanum. Ragna er líklegust til að verða hin konan.

5. sæti. Eiður Smári Guðjohnsen. Hann fær 5 sætið vegna þess að hann er hjá Barcelona og æfir fótbolta með svo góðum mönnum. Það skiptir litlu þó hann sé varamaður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ágætis spá hjá þér en ég ætla að leyfa mér að koma með mína spá

þó ég sé ekki með nein rök fyrir henni.

Mín spá er þessi:

1.sæti Guðjón Valur.   2.sæti  Eiður Smári.  3. sæti Jón Arnór

4.sæti Margrét Lára    5.sæti  Birgir Leifur

Ég er að spá í því núna hvort fólk þurfi að heita tveimur nöfnum til að geta eitthvað í íþróttum :)

Njáll (IP-tala skráð) 28.12.2007 kl. 16:51

2 Smámynd: Mummi Guð

Ágæt spá hjá þér Njáll.

Það sem þú segir um að menn þurfi að heita tveim nöfnum til að geta eitthvað í íþróttum, það er mikið til í því.

Með bestu kveðju, Guðmundur Bjarni   .

Mummi Guð, 28.12.2007 kl. 19:59

3 identicon

Já það er rétt hjá mér

Kveðja Njáll Trausti 

Njáll (IP-tala skráð) 29.12.2007 kl. 00:40

4 Smámynd: Fjóla Æ.

Þið eruð hreint ágætir piltar mínir. Ég heiti bara einu nafni enda hef ég aldrei getað neitt í íþróttum . Held bara áfram að fela þessa hringlóttu, flötu hluti sem festir eru í einhver bönd og borða í fánalitunum.

Fjóla Æ., 29.12.2007 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband