Ný skoðanakönnun.

Ég var að setja inn nýja skoðanakönnun. Þar er spurt ef einræðisherra kæmist til á valda á Íslandi, hvern myndir þú vilja hafa sem einræðisherra og valmöguleikarnir eru tveir, Jóhanna Sigurðardóttir og Pétur Blöndal.

Til að koma í veg fyrir misskilning þá er ég ekki að gera lítið úr femínistum með því að nota orðið "einræðisherra".

Í síðustu könnun spurði ég hvor Viktorían ykkur þætti kynþokkafyllri, Viktoría Beckham eða Viktoría Principal. 70 svöruðu og sögðu 62,9% að Dallasgellan væri kynþokkafyllri en 28,6% sögðu að frú Beckham væri kynþokkafyllri. 8,6% gátu ekki gert upp á milli stúlknanna. En niðurstaðan er augljós, Viktoría Principal er kynþokkafyllsta Viktorían í heimi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ussssssss Mummi minn þessi skoðanakönnun er bara um svart og svo hvítt,að gefa skít í alla eða hjálpa öllum eins og hægt er.Ég kaus nú samt og valið var ekki erfitt góðar stundir Úlli.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 2.12.2007 kl. 19:39

2 Smámynd: Ragnheiður

Nei valið var sko auðvelt

Ragnheiður , 4.12.2007 kl. 13:10

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það var nú ekki vandalaust að velja hjá þér

Huld S. Ringsted, 4.12.2007 kl. 22:44

4 Smámynd: Mummi Guð

Þó að ég eigi að vera hlutlaus í þessari könnun, þar sem þetta er nú könnun sem ég er að gera. Þá skil ég ekki hvernig stendur á því að Pétur Blöndal sé búinn að fá 12% atkvæða!

Mummi Guð, 5.12.2007 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband