Tveir þumlar upp fyrir Vildarbörnum Icelandair.

vildarbörnÞetta er frábært framtak hjá Icelandair að hafa stofnað þennan sjóð og gefa þeim sem mesta þörf hafa til að fara í góða skemmtiferð tækifæri til að láta draum sinn rætast. Ég þekki til nokkurra sem hafa farið í ferð á vegum Vildarbarna Icelandair og allir hafa verið í skýjunum yfir ferðunum. Ég óska öllum þeim sem fengu úthlutað í dag til hamingju með að komast í draumaferðina. En hrósið fær Icelandair fyrir að halda út þessum sjóði og Peggy Helgason sem ég hef grun um að spili stærra hlutverk hjá Vildarbörnum en hún lætur líta út fyrir.


mbl.is 40 börn komast í draumaferðina fyrir tilstilli Vildarbarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér svo 1000 falt.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 17:28

2 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Jú satt segir þú það er Peggy Helgason sem átti hugmyndina og er einskonar verndari sjóðsins.

María Anna P Kristjánsdóttir, 27.10.2007 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband